Guðrún Jóhanna hefur í gegnum árin sérhæft sig í náttúrulegum viðgerðarmeðferðum ásamt háræðaslitsmeðferðum í andliti. „Náttúrulegar viðgerðarmeðferðir eru gerðar án inngripa með nálum eða skurðarhnífum. Þær bæta raunverulega starfsemi húðarinnar svo hún verður margfalt sterkari og heilbrigðari í lok meðferðarkúrs. Það er mikið gleðiefni að í dag eru enn fleiri sem leita eftir náttúrulegum viðgerðarmeðferðum í stað inngripsmikilla lýtaaðgerða,“ segir Guðrún Jóhanna, eigandi snyrtistofunnar Hafbliks í Kópavogi.

Á snyrtistofunni er boðið upp á helstu húðmeðferðir, snyrtimeðferðir, nudd sem og náttúrulegar viðgerðarmeðferðir fyrir húðheilsu.

Undraverður og raunverulegur árangur

„Með náttúrulegum viðgerðarmeðferðum höfum við náð undraverðum og raunverulegum árangri sem við erum afar stolt af og viljum gjarnan koma á framfæri við öll þau sem vilja eldast með reisn,“ segir Guðrún Jóhanna.

Starfsemi og frumuendurnýjun húðarinnar er stóraukin með háþróuðum og byltingarkenndum stofnfrumu-viðgerðarmeðferðarkúr frá Bandaríkjunum, þar sem nýjustu hágæða örtækni er beitt ásamt Intraceuticals súrefnismeðferðum frá Ástralíu. „Meðferðin felur hvorki í sér skurðaðgerð né að húð sé rofin með nálum. Þetta er mjög áhrifarík aðferð til að gera við húð, bæta náttúrulegar rakabirgðir hennar og minnka línur og hrukkur í andliti án þess að svipbrigði í andliti breytist.

Virku efnin eru frostþurrkuð á mjög vísindalegan og háþróaðan hátt og innsiglaðar í vönduðum ampúlum. Meðferðarkúrinn kemur svo af stað ákveðnu endurnýjunar- og yngingarferli í húðinni, sem viðhaldið er daglega með húðvörum frá Intraceuticals milli meðferða,“ segir Guðrún Jóhanna.

Guðrún Bergmann kom í Intraceuticals su´refnismeðferð og var hissa á hvað árangurinn af henni var góður.

Árangurinn kom Guðrúnu Bergmann á óvart

Árangurinn af Intraceuticals súrefnismeðferð kom Guðrúnu Bergmann, rithöfundi og heilsu- og lífsstílsráðgjafa verulega á óvart. „Ég átti ekki von á svona miklum breytingum eftir einungis tíu skipti, enda í fyrsta sinn sem ég fer í svona framhaldsmeðferð með húðina. Ég mæli eindregið með henni fyrir þá sem vilja náttúrulega meðferð til að styrkja húðina og draga úr djúpu línunum,“ segir Guðrún Bergmann. Hægt er að lesa um upplifun Guðrúnar á gudrunbergmann.is.

Heilbrigð sjálfsmynd

Með Intraceutical súrefnismeðferð er innri fegurð og ljómi húðar dreginn fram á náttúrulegan og heilbrigðan hátt. „Þau sérkenni sem gera okkur svo einstök á sinn fallega hátt eru undirstrikuð en ekki afmáð,“ segir Guðrún Jóhanna.

Hollywood-stjörnurnar nota súrefnismeðferð

„Intraceuticals súrefnismeðferð er vinsæl hjá stjörnunum í Hollywood, enda fara þær flestar í svona meðferð til að fá lyftingu í húðina, áður en mætt er á rauða dregilinn. Margir aðalleikarar í nýjustu bíómyndunum fara líka reglulega í Intraceuticals súrefnismeðferðir meðan á tökum stendur. Má þar nefna leikara í stórmyndum eins og Elvis (2022) og í framhaldsþáttunum The Crown. Einnig er vinsælt að fara í súrefnismeðferð, til dæmis fyrir brúðkaup eða myndatöku brúðhjóna. Margar af bestu spa-meðferðarstöðum heims bjóða einnig upp á þessa meðferð.“

Stjörnurnar eru duglegar að mæta í Intraceuticals súrefnismeðferð fyrir rauða dregilinn eða hvíta tjaldið. Myndir/aðsendar

100 prósent hreinar og náttúrulegar húðvörur frá Intraceuticals

Intraceuticals húðvörurnar eru 100% hreinar og náttúrulegar, án allra parabena og rotvarnarefna. „Í öflugum viðgerðarmeðferðum skiptir öllu máli að vera með 100% hreinar og náttúrulegar húðvörur, án ofnæmisvaldandi efna.“ Guðrún segist sjálf vera með mjög viðkvæma húð vegna rósroða og skrifhúðar og hefur því leitað að hreinustu húðvörunum á hverjum tíma, þar sem hún þolir ekki nein aukaefni. „Intraceuticals húðvörurnar voru því algjör himnasending fyrir mig. Þær henta öllum húðgerðum, sér í lagi þeim sem eru með viðkvæmni í húð, rósroða, skrifhúð, exem og fleira. Sérhæfð lína er fyrir blandaða út í feita húðgerð og húð með bólur,“ segir hún.

Guðrún Jóhanna hefur ávallt verið talsmaður náttúrulegra viðgerðarmeðferða á húð og í andliti.
Sigtryggur Ari

Húðvörurnar innihalda hágæða hýalúronsýru með hárri, miðlungs- og lágri sameindaþyngd. „Hýalúronsýruhvelin fylla í línur og mynda einnig verndarhjúp um stofnfrumurnar. Þær innihalda 100 prósent hrein náttúruleg stein- og snefilefni ásamt vítamínum og öðrum virkum efnum sem stinna og þétta húðina og efla náttúrulegar varnir hennar. Þær vinna gegn óbundnum stakeindum sem eiga stóran þátt í öldrunarferli húðar og hindra að þær nái að rjúfa efnasamband heilbrigðra húðfrumna, kollagens og elastíns.

Lípó amínósýrur stuðla að samruna kollagens í húð ásamt því að mynda örfínan hjúp um virku efnin. Með háþróaðri örtækni, sem er flutningsleið virku efnanna inn í húðina, er húðinni skömmtuð næring jafnt og þétt yfir allan daginn. Það gerist þegar sýrustig húðar breytist og hún þarfnast meiri næringar og raka. Þá leysa sýrustig og náttúrulegu fituefni húðar upp hjúpinn sem geymir forðann.“

Glæsilegir tilboðspakkar og ókeypis skoðunartími

Snyrtistofan Hafblik býður upp á ókeypis skoðunartíma. „Starfsfólk okkar metur þá hvað hentar hverjum og einum miðað við húðgerð, ástand húðar og óskir viðskiptavinar. Stórkostlegir tilboðspakkar eru svo í boði út febrúar með 100.000 til 180.000 króna afslætti,“ segir Guðrún Jóhanna.

Lausn við háræðaskemmdum

Snyrtistofan Hafblik býður einnig upp á frábæra háræðameðferð þar sem notast er við hljóðbylgjur til að þurrka upp blóðprótínið í skemmdum háræðum í andliti.

Guðrún Jóhanna segir þetta vera hárnákvæma og árangursríka aðferð því hverri æð er fylgt eftir punkt fyrir punkt. „Engin áhrif verða því á annað en bara skemmdu háræðarnar í húðvefnum. Yfirleitt tekur það þrjú skipti að loka skemmdum háræðum endanlega og eru 4–6 vikur látnar líða á milli meðferða. Ef það þarf fleiri en þrjár meðferðir greiða viðskiptavinir ekkert eftir þriðju meðferð. Ekki mega líða meira en 6-8 vikur milli meðferða á sama meðferðarsvæði.“

Háræðaskemmdir eftir rósroða

Háræðaskemmdir í andliti valda fólki iðulega mikilli vanlíðan og segist Guðrún þekkja það vel af eigin raun, því hún þjáðist af mjög svæsnum rósroða frá því hún var rétt um þrítugt. „Það hafði í för með sér að háræðar skemmdust og skildu eftir sig mikil lýti og óþægindi. Við sem vorum með háræðaskemmdir höfum flest farið í endalausar laser-meðferðir með takmörkuðum árangri. Hljóðbylgjurnar byggjast á hárnákvæmri tækni og því er árangurinn ótvíræður. Ég fór sjálf í gegnum þetta viðgerðarferli þegar ég fór í sérnám til Belgíu til að læra þessa tækni og batinn hefur haldist fullkominn í meira en sjö ár. Okkur langar að bjóða viðskiptavinum upp á tilboð á háræðaslitsmeðferðum út febrúar, en hægt er að kynna sér verð og aðrar upplýsingar á vefsíðu okkar, snyrt.is.“

Mælir hiklaust með háræðaslitsmeðferð

„Meðferðin tókst frábærlega og árangurinn er sjáanlegur, á því er enginn vafi,” segir Steinn Karlsson, sem er einn af fjölmörgum sem hafa fengið lausn á sínum vanda á Snyrtistofunni Hafbliki.

Upp úr tvítugu fóru að myndast háræðaskemmdir í andliti Steins sem jukust með árunum. Áður en hann sá auglýsingu um meðferðina hjá Snyrtistofunni Hafbliki hafði hann íhugað lasermeðferð. „Mér fannst slík meðferð vera fullmikið vesen og því varð ekkert úr henni. Ég ákvað að kíkja til Guðrúnar hjá Hafbliki eftir hvatningu frá eiginkonunni. Eftir hverja meðferð var ég smá rauður og aumur en ég notaði krem samkvæmt ráðleggingum og var því yfirleitt nokkuð fljótur að jafna mig.“

Hér má sjá húðina á Steini Karlssyni fyrir háræðameðferð. Hann segir háræðaskemmdir hafa valdið sér ertingu og óþægindum.
Hér má sjá húðina á Steini eftir háræðaslitsmeðferð. Guðrún kallar hann reglulega mesta og stærsta listaverkið sem hún hefur framkvæmt til þessa.

Steinn segist því hiklaust geta mælt með meðferðinni. „Þegar maður hefur mikið af háræðaskemmdum eins og ég var með valda þær bæði ertingu og óþægindum. Meðferðin mín tókst virkilega vel, enda kallar Guðrún mig reglulega mesta og stærsta listaverkið sem hún hefur gert fram að þessu,“ segir Steinn.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Hafbliks, snyrt.is. Snyrtistofan Hafblik er staðsett að Hlíðarsmára 9, 201 Kópavogi. Tímabókanir eru í síma 893-0098.