Um aðra helgi verður blásið til Listahátíðar Samúels í Selárdal. Hátíðin fer fram við djúpblátt haf og hvítar strendur Arnarfjarðar, þar sem gestum mæta fagrir tónar, Íslandsmót í listrænni flugdrekagerð og -flugi, sælkerakrásir og sýningar á magnaðri listsköpun Samúels.
Listasafn Samúels er nefnt eftir vestfirska listamanninum Samúel Jónssyni sem byggði guðdómlega kirkju og forkunnarfagurt listasafn í Selárdal, einn síns liðs.
„Samúel var stundum kallaður „listamaðurinn með barnshjartað“ og víst er að heimsókn í safn hans og náttúruparadísina Selárdal lætur engan ósnortinn. Samúel bjó í Selárdal við Arnarfjörð frá árinu 1947 til dauðadags árið 1969 og skapaði þar málverk, líkön af þekktum merkisbyggingum í útlöndum og tignarlegar styttur af ljónum, selum, sæhesti, önd með unga sína á bakinu og Leifi heppna sem horfir út á hafið,“ segir Kári G. Schram, einn af stofnendum Félags um Listasafn Samúels og formaður þess.
„Öll verk Samúels bera honum fagurt vitni og var hann víða þekktur fyrir hæfileika sem hann bjó yfir í ríkum mæli. Þó er hans hvergi getið í ritum um íslenska listasögu, og er það miður,“ segir Kári, en þeir Ólafur J. Engilbertsson, annar stofnandi félagsins, eru í óðaönn að lagfæra þá stöðu, meðal annars með útgáfu bókar um líf og list Samúels og endurútgáfu á heimildarmynd um Samúel sem þeir gerðu saman á sínum tíma.


Er enn að sigra heiminn
Samúelssafnið í Selárdal er umvafið einstakri náttúrufegurð. Þar var opnað kaffihús og minjagripabúð árið 2020, sem stendur opið frá júníbyrjun fram í lok ágúst, en sjálft safnið er opið á meðan færð leyfir.
„Samúel var skapandi og frjór listamaður, þrátt fyrir að hafa ekki verið viðurkenndur listamaður í lifanda lífi af elítunni fyrir sunnan. Engu að síður voru verk Samúels vinsæl og það var oft gestkvæmt hjá honum, eins og enn er raunin því hingað gera sér margir sérstaka ferð til að líta verk Samúels eigin augum, jafnt Íslendingar og erlendir ferðalangar,“ upplýsir Kári.


„Aðdráttarafl Samúels er mikið. Hér má sjá fjölmörg olíumálverk og landslagsmyndir sem hann málaði og rammaði inn sjálfur í sína útskornu ramma. Hann setti upp höggmyndagarð, skar út í tré og gerði líkön, meðal annars af Péturskirkjunni í Róm og indversku musteri, þar sem hann studdist við myndir úr bókum og af póstkortum, enda fór hann aldrei til útlanda. Líkön Samúels voru listavel gerð, úr hundruðum ef ekki þúsundum smáhluta, og dylst engum að á bak við þau lágu margar vinnustundir, þolinmæði og djúpstæð sköpunargleði,“ greinir Kári frá.


Kirkja Samúels, og safn hans að Brautarholti, eru fágæt listaverk í sjálfu sér, umvafin einstakri náttúrufegurð.
„Í kjölfar aukins ferðamannastraums til Íslands hafa ljósmyndir af verkum Samúels dreifst um allan heim, enda vinsælt hjá gestum safnsins að taka þar myndir. Þá eru verk Samúels áberandi í margvíslegu kynningarefni um Vestfirði; handbókum, tímaritum og bókum,“ segir Kári á þeim kynngimagnaða stað sem Selárdalur Samúels er.


Heillandi heimur
Um aðra helgi, dagana 12. til 14. ágúst, verður Listahátíð Samúels haldin með pomp og prakt í Selárdal, en hátíðin er haldin annað hvert ár.
„Hátíðin er heillandi heimur þar sem boðið verður upp á ýmsar listauppákomur, tónleika, gönguferðir, flugdrekasmiðju, leik, brennusöng og dýrindis mat í boði 27 Mathúss. Hægt er að fara í gönguferð með leiðsögn um nágrennið, taka þátt í flugdrekasmiðju fyrir fjölskylduna í umsjá Fjólu Eðvarðsdóttur, keppa á Íslandsmóti í listrænni flugdrekagerð og flugdrekaflugi, og sækja sýningar á steypuverkum Samúels og sjá kvikmyndina Steyptir draumar í kirkjunni,“ útskýrir Kári og heldur áfram:
„Um tónlistina í dalnum sjá Skúli mennski, Between Mountains og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, sem syngur við undirleik Francisco Javier Jauregui. Loks verður fjöruferð og brennusöngur með eðal Bílddælingum og DJ Mjalti bóndi sér um að koma hátíðargestum í góðan gír.“


Safnbygging Samúels fékk sitt upphaflega hlutverk sem listasafn aftur þegar opnuð var þar fyrsta sýningin sumarið 2020.
„Í sumar opnuðum við nýja sýningu um sögu steypuverka Samúels, sem Gerhard König tók saman. Í kirkjunni hafa auk þess verið haldnir tónleikar, leiksýningar og gamanmál, og þar er sýning um sögu viðgerðanna. Auk þess býður staðurinn upp á einstaka náttúru, fallegt útsýni, hvítar strendur og djúpblátt haf, og það er mjög sérstök upplifun að dvelja í Selárdal,“ segir Kári, fullur tilhlökkunar.
Hátíðarpassi frá föstudegi til sunnudags kostar 7.000 krónur.
Nánari upplýsingar á samuelssafn. is og Facebook-síðu Listasafns Samúels. Miðasala á tix.is.

Dagskrá á Listahátíð Samúels 2022:
Föstudagur 12. ágúst
20.00 „Steyptir draumar“ – heimildamynd um Samúel sýnd í kirkjunni.
21.00 DJ Mjalti bóndi í kirkjunni.
Laugardagur 13. ágúst
12.00 Hátíð sett. Kaffi og meðlæti.
- Gönguferð í Verdali eða Vatnahvilft undir leiðsögn Sólveigar Ólafsdóttur.
- Gerhard König segir frá uppbyggingu og viðgerðum og steypuverkum Samúels.
- Smiðja í flugdrekagerð fyrir börn og fullorðna. Umsjón Fjóla Eðvarðsdóttir.
17.00 Íslandsmót í listrænni flugdrekagerð og flugdrekaflugi - Flugdrekakeppni.
18.30 Verðlaunaafhending í flugdrekakeppni.
19.00 Kvöldmatur að hætti og í boði 27 Mathúss.
DJ Mjalti bóndi – dinnertónar.
20.00 Skúli mennski – tónleikar í kirkjunni.
21.00 Between Mountains – tónleikar í kirkjunni.
21.30 Fjöruferð.
22.00 Brenna og brekkusöngur með eðal Bílddælingum.
DJ Mjalti bóndi sér um nóttina.
Sunnudagur 14. ágúst
13.00 Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jauregui – söngur og gítarleikur í kirkjunni.
14.00 Hátíð slitið.