Ólöf Rún var lengi eini starfsmaðurinn hjá Eylíf en bætti við sölufulltrúa fyrir skömmu. Fyrirtækið er staðsett í Sjávarklasanum á Granda. Hún segir frábært að vera staðsett þar vegna þess hversu góð samvinna sé meðal fólksins. „Það er góður andi í húsinu og góðar tengingar. Mörg frábær tækifæri hafa skapast og ég hef tekið þátt í ýmsum verkefnum og kynningum, hér opnast mörg tækifæri. Sömuleiðis er gott tengslanet og ég er sannarlega á réttum stað.
Ég hef núna skráð vörumerkið í 30 löndum og stefni á frekari útflutning, jafnt til Evrópu og Bandaríkjanna.
Upphaflega fór ég út í þessa framleiðslu því ég sá tækifæri á markaði til að nýta íslensk hráefni í vörur sem hafði ekki verið gert áður. Það eru til sérstakar vörur úr þessum íslensku hráefnum en þeim hefur ekki verið blandað saman fyrr,“ segir Ólöf, sem alltaf hefur haft mikinn áhuga á heilsu og betri líðan.
Ólöf rak lengi fyrirtækið Icecare áður en hún fór að framleiða fæðubótarefni úr íslenskum auðlindum. „Áhuginn er það sem drífur mann áfram,“ segir hún. „Það hefur gengið vel að fá fyrirtæki til samstarfs. Hráefnisframleiðendur um allt land skaffa hráefnið,“ bætir hún við. „Vissulega tók ferlið að þróa vörurnar tíma, en þá var mikilvægt að vera í samstarfi með sérfræðingunum hjá Matís. Ég kaupi sérfræðiþjónustu hjá Matís, sem tekur þátt í vöruþróun á heilsuvörunum, vali á hráefnum, stýrir innihaldslýsingum og sér um að stilla upp næringarinnihaldi,“ segir hún.
Ánægðir viðskiptavinir
Í fyrstu var Ólöf með tvær fæðubótartegundir frá Eylíf. Þeim fjölgaði fljótt í fimm. „Vörunum hefur verið sérlega vel tekið og þá sérstaklega Active Joints. Fólk er mjög ánægt með þá vöru og margir hringja í mig og segja mér hversu vel varan virkar. Active Joints er bólguhamlandi, en það eru einmitt bólgur sem hrjá oft fólk. Það er ekki til fæðubótarefni sem byggir upp brjósk, en Active Joints hefur hjálpað fólki varðandi liðavandamál. Það er gaman að segja frá því að viðskiptavinir Eylífar nota margir fleiri en eina vöru. Það eru bæði kynin sem láta vel af Active Joints frá Eylíf,“ segir hún.
Fékk góðan styrk
„Ég hef frá upphafi fjármagnað allt sjálf og spara mikið í yfirbyggingu með því að kaupa sérfræðiþjónustu eftir þörfum, úthýsa verkefnum svo sem dreifingu, en það gerir mér kleift að láta dæmið ganga upp,“ segir hún, en nýverið fékk Ólöf loks styrk frá Matvælasjóði upp á 10 milljónir króna sem hún segir koma sér afar vel. Hún hefur hug á að færa út kvíarnar og er stefnan tekin á breska og þýska markaði. Auk styrks frá Matvælasjóði eru vörur frá Eylíf loksins að fara í sölu á Amazon.com, eftir 33 mánaða vinnu og bið. „Salan mun fara í gang á Amazon á næstu mánuðum. Það er áhugavert að í Þýskalandi er allt íslenskt í hávegum haft og talið að allar vörur frá Íslandi séu mjög hreinar og góðar. Hvað varðar breska markaðinn, þá er hann líkur okkar markaði, það má segja að eðlilegt sé að stíga skrefin inn á þann markað með breskum dreifingaraðilum.“
Ólöf segir að það hafi verið stefnan frá upphafi að koma vörum Eylíf á markaði erlendis. Vörurnar hafa fengið frábærar móttökur hér á landi. „Fyrsta árið seldum við lagerinn jafnan upp og tókum því stórt stökk inn á íslenska markaðinn.
Vöxturinn var mikill á milli fyrstu tveggja áranna, eða 100%, en núna er salan orðin stöðug og ætli vöxturinn verði ekki 10–15% í ár sem er eðlilegra,“ segir hún. „Ég hef núna skráð vörumerkið í 30 löndum og stefni á frekari útflutning, jafnt til Evrópu og Bandaríkjanna,“ segir hún.
„Þegar salan hefst erlendis mun ég þurfa að ráða starfsfólk í viðskiptaþróun á erlendum mörkuðum, með það fyrir augum að auðvelda ferlið og kynninguna út fyrir landsteinana.
Með hægum skrefum er best að stefna á sölu erlendis, því þetta eru stórir markaðir og mjög dýrt að skala sig upp, sérstaklega með tilliti til þess að ég ætla að stefna á að vera áfram eini eigandinn.“
Frábært samstarf
„Samstarfsaðilar mínir á Grenivík, sérfræðingarnir hjá Pharmarctica, eru algerlega ómetanlegir í þessu ferli með mér. Þau taka þátt í þróuninni með sérfræðingum frá Matís, gera formúleringar og prufulotur auk þess að standa í framleiðslunni sem er algerlega í þeirra höndum. Framleiðslan hjá þeim er undir GMP-gæðastaðli sem mér finnst mjög mikilvægt fyrir Eylíf vörurnar. Þórunn I. Lúthersdóttir er í fararbroddi í þróun og samsetningum á Eylíf vörunum hjá þeim,“ heldur hún brosandi áfram.
„Ég hef átt einstaklega gott samstarf við þau á Grenivík. Sérfræðingar þar taka líka þátt í vöruþróun. Hráefnið kemur jafnt frá sjó og landi. Þangað sæki ég líka nafnið á fyrirtækinu, það táknar lífið á eyjunni til eilífðar. Ég auðvelda almenningi aðgengi að þessum frábæru hráefnum sem til eru hér heima. Ég kem með aðeins aðra nálgun að hráefnunum en margir aðrir. Ég blanda til dæmis saman efnum sem aðrir hafa ekki verið að blanda saman, eins og kalkþörungum, smáþörungum, íslenskum jurtum og kísli sem kemur frá heitavatnsaffallinu á Hellisheiði, og geri með því virkni þeirra jafnvel enn þá öflugri,“ útskýrir Ólöf.
„Auk náttúrulegra hráefna sem vaxa hér á landi styrki ég blönduna með til dæmis C- og D-vítamíni. En hugsunin er að nota þessi hreinu, íslensku, frábæru hráefni frá sjálfbærum auðlindum til að bæta heilsu fólks. Að geta boðið upp á vöru sem fólki líður vel af er mjög gefandi starf. Öll hráefnin hafa staðfesta verkun. Þess vegna vel ég þau. Mig langar að selja hugmyndafræðina um að Ísland sé gott og hreint land og að efnin sem þaðan koma séu góð og kröftug. Jurtirnar hér á landi hafa bara um 3–4 mánuði til að vaxa og blómstra, þær þurfa að lifa af harðan vetur og þegar þær blómstra þá eru þær mjög kröftugar.“
Gott tengslanet í FKA
Þegar Ólöf er spurð hvort hún sé virk í FKA, svarar hún: „Ég er frekar áhorfandi. Mér finnst gagnlegt að vera í félaginu og ég vil fylgjast með hvað er að gerast. FKA hefur nýst mér sem tengslanet. Það er hægt að setja inn fyrirspurn á síðuna hjá þeim og spyrja til dæmis hvort þær þekki einhverjar sem taka hin og þessi verkefni að sér. Ég hef nýtt mér það svolítið. Tengingar eru öflugt tól hjá þeim,“ segir hún.
„Það er svolítið sérstakt fyrir Ísland,“ segir hún. „Grunnstoðir heilsu; svefn, næring, hreyfing og hugarfar, er eitthvað sem skiptir mig miklu máli. Ég vil leggja áherslu á þetta og hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft. Það er frábært að geta hjálpað fólki að finna lausn á sínum málum.“
Vörurnar frá Eylíf eru unnar úr hreinum íslenskum hráefnum og er framleiðslan á Íslandi. Margra ára staðfestar rannsóknir eru að baki öllum hráefnunum. „Við hjá Eylíf vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og landi. Við notum hreinar íslenskar náttúruafurðir, náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt og eru vörurnar án allra aukaefna,“ segir frumkvöðullinn Ólöf.
