„Það er skemmtilegasti tími ársins, þegar við sjáum hvað hægt er að skapa mikla gleði með jólagjöfinni okkar,“ segir Guðrún Marteinsdóttir, prófessor í fiskavistfræði við Háskóla Íslands og frumkvöðullinn að baki íslensku húðvörulínunni Taramar.
Guðrún segir að um mitt sumar hefjist undirbúningur fyrir jólagjöf Taramar og þá séu ávallt fengnir flottir hönnuðir og ljósmyndarar í lið með þeim.
„Í ár unnum við gjöfina með Oscari Bjarnasyni, Eyþóri Árnasyni og Enso. Við hönnuðum höfðinglega gjöf sem inniheldur fjórar af TARAMAR vörunum. Þessi gjöf er í anda ferðasettsins okkar: Treasure Chest, en er stærri og heitir Treasure Chest II,“ upplýsir Guðrún. „Segja má að enginn verði ósnortinn af þessari stórkostlegu gjöf, en lífvirknin úr íslensku náttúrunni ómar í gegnum allar þessar vörur og byrjar strax að vinna með húðina á svo fallegan hátt. Á stuttum tíma, jafnvel innan við viku, má sjá fyrstu breytingarnar. Hrukkur og línur verða grynnri og sumar hverfa. Húðin verður rakameiri, þéttari og fer að ljóma. Fyrir marga er erfitt að ímynda sér meiri gleði en þá að sjá andlitið lyftast og húðina verða glóandi fallega.“
Guðrún útskýrir að virkni TARAMAR varanna hafi verið metin af óháðum aðila, Dermscan í Frakklandi. „Niðurstöður úr þessum óháðu prófunum sýna afgerandi virkni og frábæran árangur sem passar vel við niðurstöður okkar og mælingar á íslensku innihaldsefnunum. Við höfum birt þessar niðurstöður í viðurkenndum vísindaritum. Þannig sjáum við að þangið sem við völdum að vinna með og er safnað af Símoni í Bláskel með handafli í Breiðafirði, hefur ótrúlega virkni og getu til að stoppa niðurbrot á kollageni í húðinni. Bæði þangið og íslensku lækningajurtirnar sem koma frá lífrænt vottuðum búum á Hæðarenda og Móður Jörð, hafa svo margvíslega virkni sem vinnur með húðina á mörgum sviðum,“ segir hún.

Best að nota daglega
Best er að nota TARAMAR vörurnar í jólagjöfinni á hverjum degi samkvæmt Guðrúnu sem lýsir því skref fyrir skref hvernig skal nota þær.
„Best er að þvo húðina vel með volgu vatni á morgnana og nota Purifying Treatment, en það fylgir ekki með í gjöfinni. Með þessu eru úrgangsefni og sviti frá nóttunni skoluð í burtu og húðin er tilbúin til að taka á móti lífvirkninni,“ útskýrir hún. „Í næsta skrefi er Serumið borið á, stundum bara á svæðin sem áhersla er lögð á, svo sem í kringum augu og munn eða þar sem hrukkur og línur birtast í húðinni. Einnig má bera serumið á allt andlitið en það styður við framleiðslu kollagens, aukningin er allt að 20% á 6 vikum, það dregur úr vökvatapi og fær húðina til að ljóma,“ heldur hún áfram.
„Síðan er dagkremið borið á allt andlitið. Dagkremið inniheldur lífvirk efni í náttúrulegum ferjum og vinnur mjög djúpt ofan í húðina. Lífvirku efnin fá húðfrumurnar til að vinna betur og skola út úrgangsefnum. Húðin verður þéttari, mýkri og teygjanlegri og ákaflega skemmtileg viðkomu. Augnkremið má nota hvort sem er að morgni eða kvöldi. Það er borið á allt í kringum augun, bæði ofan á augnlokin og undir augun. Þetta ótrúlega ljúfa krem hefur ákaflega mikil áhrif á ásýnd augnanna. Það dregur saman fellingarnar sem eru að myndast fyrir ofan augun og minnkar poka og bauga fyrir neðan augun um leið og það nærir og verndar þessa viðkæmu húð sem rammar af augnsvæðið. Áhrifin eru stórkostleg og öll augnumgerðin lyftist og fær á sig unglegri blæ,“ segir hún.

„Að lokum er næturkremið borið á allt andlitið. Þetta krem er sérstaklega þróað til að aðstoða húðina í því mikilvæga verkefni sem hún sinnir á nóttunni. Þannig verndar kremið húðina gegn rakatapi, örvar myndun kollagens og tengir saman húðlög sem eru að rofna í sundur eins og gerist þegar húðin eldist. Áhrifin eru engu lík og húðin tindrar af þrótti og gleði við að upplifa og nýta þessi frábæru efni sem finnast í næturkreminu.“
Guðrún segir að á kvöldið skuli húðin á andlitinu aftur þvegin og djúphreinsuð með Purifying Treatment. Jólagjöfin í ár frá TARAMAR heitir Treasure Chest II og inniheldur fjórar TARAMAR vörur.
Margverðlaunaðar vörur
TARAMAR hefur fengið 30 alþjóðleg verðlaun og nú í vikunnfengu tvær nýjustu vörurnar, Arctic Flower og Hydration Treatment, gullverðlaun hjá Global Makeup Awards Skandinavia 2022.


Stórkostlegt tilboð
Guðrún segir frá því að í dag og næstu tvo daga sé stórkostlegt tilboð, eða 50% afsláttur á TARAMAR vörunum í vildarklúbbi TARAMAR á taramar.is. Meðlimum í vildarklúbbi TARAMAR fjölgar á hverjum degi og eru nú fleiri en 5.000 manns. Þeim standa til boða mismunandi tilboð í hverjum mánuði. Fyrir hver kaup fá þeir vildarpunkta sem þeir geta notað til að fá afslátt í næsta skipti sem þeir versla. Guðrún útskýrir að á sama tíma hækki þeir úr brons yfir í gull og fái þannig enn meiri afslátt. Það kostar ekkert að skrá sig í vildarklúbbinn. Þvert á móti þá eru lagðir inn 5.000 punktar (samsvara 5.000 krónum) á vörslureikning viðkomandi þegar hann skráir sig inn í vildarklúbbinn á taramar.is.
