TARAMAR hefur þróað kynngimögnuð efni úr íslenskri náttúru sem draga úr sýnilegum áhrifum öldrunar í húð. Það er aldrei of seint að draga úr sýnilegum áhrifum öldrunar, segir Guðrún stofnandi TARAMAR. „Viðskiptavinir okkar eru á öllum aldri, bæði ungar konur og unglingar sem og konur og karlar sem eru komin á háan aldur (90+). Við fáum alltaf öðru hvoru póst frá konum sem héldu að þær væru komnar yfir markið og að ekkert gæti hjálpað, en eru svo yfir sig ánægðar með TARAMAR og sjá mun frá hverri viku til annarrar. Breytingarnar geta verið svo miklar að vinir og vandamenn taka eftir þeim og fara jafnvel að spyrja um hvaða yngingarmeðal viðkomandi sé að nota,“ segir Guðrún og hlær.

Næturkremið tekur þátt í lífeðlisfræðilegum ferlum húðarinnar og endurbyggir hana á meðan þú sefur. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI

Sterkari og heilbrigðari húð

Ekki er eingöngu ánægjulegt að sjá húðina verða sléttari og fallegri á litinn, heldur er einnig ótrúlega góð tilfinning að finna húðina verða sterkari og þéttari og betri viðkomu, bætir Guðrún við. „Þannig hafa margir í raun endurbyggt húðina með því að taka góðan tíma í að nota TARAMAR vörurnar eingöngu á húðina.“

Hreinleikinn og snilldarleg samsetning varanna veldur því að fólk með alls konar vandamál, eins og þurrk, rósroða og exem, getur notað þessar vörur og í mörgum tilvikum hafa tilteknir kvillar minnkað mikið eða jafnvel horfið. „TARAMAR kremin eru ofnæmisprófuð og rannsóknir hjá óháðum aðilum í Frakklandi hafa sýnt að miklar breytingar verða á húðinni fyrstu 1-3 mánuðina við notkun varanna. Húðin verður þéttari með meiri þéttleika af kollageni, sléttari með minni hrukkur, rakameiri og tekur á sig ljóma og fallegan lit.“

Augnkremið byggir á lífvirkni þangs og alparósar sem þéttir húðina og dregur úr fellingum þar sem húðin er farin að síga.

Húðin fer í gegnum breytingar þegar við eldumst

Þegar við eldumst rofna tengingar á milli húðlaga og stoðvefirnir verða gisnari, að sögn Guðrúnar. „Húðin missir þéttni og fer að síga. Aðrar breytingar eiga sér líka stað. Þannig hægir á efnaskiptum í húðfrumunum, húðin tapar vökva og verður þurr, blóðrásin hægir á sér og fíngerðar æðar, til dæmis í kringum augun, geta lekið út blóðvökva þannig að baugar myndast undir augunum.“

Kollagenþræðirnir missa auk þess styrk og verða krumpaðir, húðin missir teygjanleika og línur og hrukkur myndast. „Ytri og innri þættir eins og sólarljós, stress, tilfinningalegt álag og hormónaójafnvægi geta hraðað þessu ferli.“

Allar þessar breytingar eru ákaflega áhugaverðar, að sögn Guðrúnar sem segir starfsfólk TARA­MAR hafa mikla ánægju af þeim áskorunum sem felast í því að búa til húðvörur sem draga úr hraða þessara breytinga og vinna á móti þessum neikvæðu ferlum í húðinni.

Lífvirku kremin frá TARAMAR sökkva hratt inn í húðina og aðstoða húðfrumurnar við að ná upp heilbrigðum efnaskiptum og réttri virkni.

Lífvirkar ferjur gera húðina betri

TARAMAR vörurnar byggja á langtímarannsóknum á lífvirkum innihaldsefnum, bæði fyrir matvæli og húðvörur. „Þannig hefur þróunin á TARAMAR vörunum nýtt sér rannsóknaniðurstöður úr matvælarannsóknum við Háskóla Íslands á fæðubótarefnum og lífvirkum efnum úr náttúru Íslands, svo sem ómega-olíum og kítíni og þá sérstaklega rannsóknir er snúa að flutningi þessara efna inn í líkamann með náttúrulegum örferjum. Þessar náttúrulegu ferjur eru notaðar í TARAMAR vörunum til að ferja lífvirku efnin djúpt inn í húðina þar sem þau nýtast til að koma af stað heilbrigðum efnaskiptum, draga úr oxun, fjarlægja sindurefni, styrkja frumuhimnur og endurbyggja tengingar á milli húðlaga.“

Finna má augnkremið og serumið á mjög góðum afslætti þann 11. nóvember á taramar.is.

Til að ná jafnvægi húðar þarf vöru sem er í jafnvægi

Guðrún segir að eitt það mikilvægasta við samsetningu TARAMAR húðvaranna, hafi verið rannsóknirnar á því hvernig hægt væri að ná fullkomnu jafnvægi í formúlunum og vernda lífvirknina, sem er í raun tengd náttúrulegri tíðni efnanna. „Það ætti að vera öllum ljóst að það er erfitt að framkalla jafnvægi í húð með kremum sem eru ekki sjálf í jafnvægi. Með því að raða saman innihaldsefnum sem mynda samhljóm í vörunni, þá náum við fram virkni sem er einstök. Margir finna þetta strax bara við það að bera kremin á sig, en með notkun þeirra fylgir djúp tilfinning fyrir fullkomnu jafnvægi sem við teljum að framkalli það besta í húðinni.“

Rannsóknir TARAMAR í framtíðinni munu beinast að þessum þáttum þar sem starfsfólk mun auka skilning sinn á því sem er að gerast í húðinni og hvernig það tryggir virkni lífvirku efnanna og auðveldi upptöku þeirra. „Þannig munum við skilja betur og betur mikilvægi þess að formúlan sé í jafnvægi og hvaða efni vinna best saman og hvernig við pökkum þeim inn í náttúrulegu ferjurnar sem færa þau inn í húðina þar sem þau styrkja lífeðlisfræðilega ferla og bæta heilsu húðarinnar.“

Í tilefni af degi einhleypra er hægt að kaupa TARAMAR augnkremið og serumið á 30% afslætti í vefversluninni á taramar.is.