Myndin byggir á borðspilinu vinsæla Dungeons and Dragons og víst er að fjölmargir aðdáendur þess bíði spenntir og fjölmenni í bíó. Myndin segir frá heillandi þjófi og mislitum hópi ævintýramanna sem leggja af stað í leiðangur til að hafa upp á týndum fornminjum. Hlutirnir fara heldur betur úrskeiðis þegar hópurinn lendir í slagtogi við óvinveitta aðila.

Hluti myndarinnar var tekinn upp hér á landi þar sem meðal annars má sjá eldgosinu í Geldingadölum bregða fyrir. Tökur fóru einnig fram á Norður-Írlandi. Aðalhlutverkin eru í höndum Chris Pine, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í nýju Star Trek myndunum, og Michelle Rodriguez, sem lék meðal annars í Avatar og var í aðalhlutverki í myndunum Machete og Machete Kills. Stórstjarnan Hugh Grant er einnig í stóru hlutverki í myndinni þar sem hann fer fyrir glæpahópi.

Þetta er fjórða bíómyndin sem byggir á borðspilinu en áður höfðu þrjár kvikmyndir komið út á árunum 2000–2012. Dungeons and Dragons: Honor Among Thieves tengist þó á engan hátt söguþræði fyrri mynda. Dungeons and Dragons: Honor Among Thieves, verður frumsýndi á South by Southwest hátíðinni í Texas í Bandaríkjunum föstudaginn 10. mars en fer í almenna dreifingu þar í landi sama dag og frumsýning er hér, eða 31. mars

Frumsýnd 31. mars 2023

Aðalhlutverk: Chris Pine, Michelle Rodriguez, Regé-Jean Page, Justice Smith, Sophia Lillis og Hugh Grant

Handrit: Michael Gilio, John Francis Daley og Chris McKay

Leikstjórn: John Francis Daley og Jonathan Goldstein

Bönnuð innan 12 ára

Sambíóin, Smárabíó og Laugarásbíó