Samfylkingin vill gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu fyrir börn, hærri barnabætur, Keflavíkurlínu og boða sókn gegn sérhagsmunum. Þetta er meðal þess sem að Samfylkingin kynnti í dag, þegar nákvæmlega einn mánuður er til kosninga, í kosningastefnu sinni fyrir alþingiskosningarnar 25. september.

Kosningastefnan ber yfirheitið Betra líf - fyrir þig, þína fjölskyldu og komandi kynslóðir. Þar má finna þær megináherslur sem flokkurinn setur á oddinn við stjórnarmyndun og í störfum sínum á Alþingi næstu fjögur árin.

„Samfylkingin ætlar að leiða saman annars konar ríkisstjórn en þá sem nú situr. Ríkisstjórn sem setur fjölskyldur í forgang, er tilbúin að stórbæta kjör eldra fólks og öryrkja, byggja upp sterkara samfélag með nýrri atvinnustefnu, þar sem allir hafa aðgang að fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu og ráðast í alvöru aðgerðir í loftslagsmálum,” sagði Logi Einarsson, formaður flokksins þegar hann kynnti stefnuna í dag.

Kosningastefnan skiptist í fjóra hluta þar sem lögð er áhersla á hærri barnabætur og meira fyrir eldra fólk og öryrkja, aðgerðir í loftslagsmálum, þjóðarátak í geðheilbrigðismálum og nýja atvinnustefnu og svo í fjórða lagi sókn gegn sérhagsmunum og jöfnum tækifærum.

Fram kemur í stefnunni að Samfylkingin vilji taka upp alvöru norrænt barnabótakerfi og greiða fleiri fjölskyldum út hærri barnabætur í hverjum mánuði, þannig að barnafjölskyldur með meðaltekjur fái allt að 54.000kr í vasann mánaðarlega.

Þá vill flokkurinn hækka grunnlífeyri eldra fólks og öryrkja til samræmis við Lífskjarasamningana og hækka frítekjumörk og ráðast í kerfisbreytingar á húsnæðismarkaði til að auka verulega framboð og lækka verð.

Alvöru aðgerðir í loftslagsmálum

Hvað varðar loftslagsmálin sagði Logi að flokkurinn ætlaði sér stóra hluti.

„Við ætlum að hefja kraftmikla sókn gegn loftslagsbreytingum sem jafnast á við stærstu samfélagsverkefni 20. aldar: Raflýsingu og hitaveitu, lagningu síma og þjóðvega,” sagði Logi í ræðu sinni og sagði að svo að það yrði að veruleika þyrfti nýja nálgun og „alvöru aðgerðir“ á öllum sviðum samfélagsins.

Samfylkingin vill lögfesta loftslagsmarkmið um að minnsta kosti 60 prósent samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Mynd/Hari

Vilja Keflavíkurlínu og flýta Borgarlínunni

Meðal þess sem Samfylkingin ætlar að gera er að lögfesta loftslagsmarkmið um að minnsta kosti 60 prósent samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 og hefja undirbúning að Keflavíkurlínu, grænni tengingu milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar, og flýta Borgarlínu.

Þá vilja þau bæta almenningssamgöngur á öllu landinu svo það verði einfaldur og raunhæfur kostur fyrir fólk að ferðast um Ísland án einkabíls. Rafvæða bílaleiguflotann með skattalegum hvötum og markvissri uppbyggingu hleðsluinnviða.

Sálfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni aðgengilegri og gjaldfrjáls

Samfylkingin ætlar að auka fjármagn, bæta mönnun og aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu um allt land og ráðast í þjóðarátak í geðheilbrigðismálum.

Fram kom í máli Loga að fyrsta skrefið væri að gera sálfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni mun aðgengilegri og gjaldfrjálsa.

Sókn gegn sérhagsmunum og jöfn tækifæri

Þá boðar Samfylkingin sókn gegn sérhagsmunum, hærri veiðigjöld og endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu með það að markmiði að hámarka arð þjóðarinnar af sjávarauðlindinni. Þá leggur flokkurinn áherslu á haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna við ESB, að stjórnarskrármálið verði klárað á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs, að ný og mannúðlegri stefna í málefnum flóttafólks verði tekin upp og að samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur, svo eitthvað sé nefnt.

Hægt er að kynna sér stefnuna betur á vef Samfylkingarinnar hér.