Tólf þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa sent frá sér tillögu að þingsályktun þar sem lagt er til að Alþingi fordæmi aðför að réttindum transfólks víða um heim. Samtökin 78, Trans Ísland, Intersex Ísland og Hinsegin dagar skoruðu nýverið á íslensk stjórnvöld að fordæma fyrirhugaðar aðgerðir Bandaríkjastjórnar um endurskilgreina hugtakið um kyn. Greint var frá því nýverið að Heilbrigðisráðneyti Bandaríkjanna hyggðist þrengja lagalega skilgreiningu kyns þannig að allir Bandaríkjamenn teljist til þess kyns sem kynfæri þeirra gáfu til kynna við fæðingu.

Í greinargerð um þingsályktunartillöguna kemur fram að kynvitund sé ekki alltaf í samræmi við það kyn sem fólki er úthlutað við fæðingu. Auk þess fæðist fjölmörg börn með óráðin eða ódæmigerð kyneinkenni. 
„Réttarstaða transfólks og intersex-fólks á síðustu árum og áratugum hefur sem betur fer batnað þótt enn sé langt í land. Ísland er í 16. sæti á hinu svokallaða regnbogakorti sem Evrópusamtök hinsegin fólks (e. ILGA-Europe) gefa út árlega um réttindi hinsegin fólks. Ísland hefur dregist aftur úr en landið var í 14. sæti árið 2016. Þá standa önnur Norðurlönd Íslandi framar á kortinu. Malta trónir á toppnum en þar voru lög um réttindi transfólks og intersex-fólks samþykkt árið 2015. Ljóst er að við þetta verður ekki unað. Gera verður gangskör að því að tryggja réttindi transfólks og intersex-fólks hér á landi í hvívetna,“ segir í greinagerðinni. 

Þá segir að mannréttindi þessara hópa séu víða um heim virt að vettugi, en nú séu blikur á lofti um að ríkisstjórn Donald Trumps Bandaríkjaforseta íhugi að afmá skilgreiningar á transfólki úr lögum og að kyn verði aðeins skilgreint sem tvö líffræðileg kyn sem er úthlutað við fæðingu. 

„Full ástæða er til að fordæma þessa aðför að grundvallarmannréttindum transfólks sem felst í slíkum breytingum en þær mundu auk þess leiða til aukinna fordóma og jaðarsetningar transfólks og hefta verulega aðgengi þess að þjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu, og hefta jafnframt þátttöku transfólks í samfélaginu.  Sagan kennir okkur að fyrir öllum réttindum þarf að berjast. Víða um heim eru mannréttindi transfólks enn fótum troðin og hér á Íslandi mætti staðan svo sannarlega vera betri þótt ýmislegt hafi áunnist á síðustu árum. Mikilvægt er að standa vörð um þann árangur sem þegar hefur náðst og halda baráttunni áfram, innan lands sem utan.“

Flutningsmaður er Margrét Tryggvadóttir, en aðrir þingmenn eru sem standa að baki ályktuninni eru Guðjón S. Brjánsson, Logi Einarsson, Helga Vala Helgadóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Steindór Valdimarsson, Smári McCarthy, Björn Leví Gunnarsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.