Safa Jemai vissi það strax í barnæsku að hún vildi fara óhefðbundnar leiðir í lífinu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún að afrekað ótrúlega margt og er hvergi nærri hætt. Safa er fædd í Túnis, nyrsta landi Afríku. Hún hefur allt frá barnsaldri verið metnaðarfullur námsmaður, haft gaman af náminu og sett sér markmið um góðan námsárangur. Sama má segja um önnur markmið sem hún setur sér, hún lætur verkin tala.

Safa er menntuð sem hugbúnaðarverkfræðingur og starfar sem framkvæmdastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Vikonnekt sem tók meðal annars þátt í Gullegginu með Treatably-appinu sem er hugsað fyrir einstaklinga sem glíma við króníska skjaldkirtilssjúkdóma. Safa er á 28. aldursári, búsett á Íslandi og á íslenskan kærasta. Nýjasta verkefnið sem Safa hefur tekið sér fyrir hendur er að stofna eigið fyrirtæki, Mabruka, sem flytur inn heimagerð krydd frá Túnis sem hafa þau slegið í gegn.

„Ég lærði hugbúnaðarverkfræði í háskólanum í Túnis sem var bæði erfitt og krefjandi,“ segir Safa sem á einn bróður og tvær systur í Túnis og hefur alltaf verið mjög náin bróður sínum. „Síðan ég var barn, langaði mig til að gera eitthvað öðruvísi, að búa til eitthvað sérstakt, því að mig langaði gera foreldra mína stolta af mér. Ég hef líka verið heppin með fjölskylduna sem hefur stutt við bakið á mér, líka þegar ég ákvað að flytja að heiman.“

Vann fyrst í gróðurhúsi

Safa er dolfallin yfir fegurð Íslands og er búin að eignast marga góða vini á þeim tíma sem hún hefur búið hér.

En hvers lá leið hennar til Íslands?

„Ég var 22 ára gömul þegar ég sá myndir af Íslandi í fyrsta sinn á fésbókarsíðu. Ég var alveg heilluð yfir þessu fallega og einstaka landi. Á þessum tíma var námið erfitt og ég var orðin þreytt á því. Mig langaði að gera eitthvað annað en að sitja allan daginn við tölvu að forrita. Ég sá að Aiesec var að auglýsa eftir fólki í sjálfboðaliðastarf sem vildi koma til Íslands og vinna í gróðurhúsi. Ég sótti um, fékk starfið og kom fyrst til Íslands í júní árið 2017 og var í Hveragerði í þrjá mánuði þar sem ég vann sem „Camp leader“ að aðstoða sjálfboðaliða og vinna í gróðurhúsi.

Þetta var gullið tækifæri til að læra um annan menningarheim og öðruvísi bakgrunn fólks.

Þetta var ein af bestu ákvörðunum sem ég hef tekið í lífinu. Þetta var gullið tækifæri til að læra um annan menningarheim og öðruvísi bakgrunn fólks. Ég fór heim til Túnis eftir þessa dvöl og það var erfitt að kveðja vini mína sem ég kynntist hér á Íslandi á þessum tíma. Mig langaði að kynnast landinu betur. Eftir að hafa hugsað mig vel um, ákvað ég að tala við mömmu og sagði: Mig langar að fara aftur til Íslands og prófa eitthvað nýtt. Ég sótti um nám á Íslandi og kom aftur ágúst 2018. Nýtt ævintýri hófst.“

Nýjasta verkefnið sem Safa hefur tekið sér fyrir hendur er að stofna eigið fyrirtæki, Mabruka, sem flytur inn heimagerð krydd frá Túnis.

Besta leiðin til að læra íslensku

„Mér var tjáð að ég þyrfti fyrst að læra íslenskuna áður en ég héldi áfram læra hugbúnaðarverkfræði sem ég gerði. Ég vissi ekkert hvað beið mín, fyrir mér var þetta spennandi, ég var 23 ára og var tilbúin í allt. Ég átti mér eitt markmið sem var að skilja vel íslenska menningu og eignast fleiri vini. Ég vissi það að ef ég vildi ná þessu markmiði þá þyrfti ég fyrst að læra tungumálið og það hef ég gert en fyrir talaði ég arabísku, frönsku, ensku og smá þýsku.“

Safa tók eitt ár í íslenskunámi í HÍ en þar lærði hún málfræði og beygingu orða.

„Þetta var besta leiðin til að læra íslenskuna almennilega. Árið 2019 starfaði ég jafnframt við liðveislu og aðstoðaði fatlaðan einstakling og á þessu tímabili ég náði mjög góðum tökum á íslenskunni enda samskiptin náin. Eftir átta mánuði var ég orðin mjög fær í íslenskunni.“

Mamma Söfu, Mabruka, hefur tekið fullan þátt í þessu með henni ásamt bróður hennar Yosri.

Heimagerð krydd frá Túnis

„Þegar ég flutti til Íslands tók ég góðan tíma til að upplifa íslenska menningu. Það liðu tvö ár áður en ég heimsótti fjölskyldu mína til Túnis og það var magnað. Þegar þú býrð í 20 ár á sama stað hættirðu stundum að sjá hlutina í kringum þig. Mamma eins og flestar mömmur elskar að elda góðan mat fyrir börnin sín. Í þessari heimsókn fann ég hvað maturinn hennar var bragðgóður, hún malaði ferskan chilli og setti það út í kúskús, fékk hvítlauk frá nágranna sem ræktar hvítlauk heima hjá sér og notaði. Mömmu finnst mikilvægt að fá ávallt bestu hráefnin og búa til sín eigin krydd. Ég var úti í tíu daga og kom til baka til Íslands með margar tegundir af kryddi sem mamma gaf mér.

Mömmu finnst mikilvægt að fá ávallt bestu hráefnin og búa til sín eigin krydd.

Ég byrjaði strax að prófa kryddin með íslenskum hráefni, eins og bleikju, þorsk, kjöti og íslensku grænmeti. Útkoman var frábær og ég fór að deila kryddinu með kærastanum mínum og vinkonum. Allir voru alsælir að fá að prófa ný og spennandi brögð. Við kölluðum þetta „Game changer“. Í framhaldi langaði mig til að leyfa fleirum að smakka kryddin að heiman, sannfærð um að ef Íslendingar fengju að smakka kryddin frá Túnis myndu þeirra finna ný brögð og nýja matarupplifun. Eftir að hafa ígrundað þetta mjög vel ákvað ég að hefja innflutning á kryddum frá Túnis. Þráinn Freyr Sigfússon eigandi Óx og Sumac hvatti mig líka áfram þegar ég nefndi þetta við hann eitt sinn og var strax spenntur fyrir vörunni. Í framhaldi hóf ég að skoða að stofna fyrirtæki sem er risavaxið verkefni. Ég var heppin að fá bróður minn til að aðstoða mig og leita ráðgjafar, hjálp hans hefur verið ómetanleg. Þetta verkefni er sprottið af ást beint frá hjartanu.“

Mér var tjáð að ég þyrfti fyrst að læra íslenskuna áður en ég héldi áfram að læra hugbúnaðarverkfræði, sem ég gerði. Ég vissi ekkert hvað beið mín, fyrir mér var þetta spennandi, ég var 23 ára og tilbúin í allt.

Mabruka eftir móður Söfu

Móðir Söfu gerir kryddin frá grunni og aldargamlar hefðir eru í forgrunni. „Hún vill alltaf gera hluti eins og í gamla daga og vill ekki breyta neinu. Til dæmis, kaupir hún stóran poka af hvítlauki frá bónda, tekur hýðið af og malar hann með mortéli svo þurrkar hún hvítlaukinn í sólinni og malar hann svo aftur. Allt sem hún gerir er gert með höndunum.“

Safa segir að það hafi ekki verið auðvelt að finna nafn á fyrirtækið.

„Þetta var ekki einfalt verkefni. Fólk í kringum mig sagði að það væri best að nefna það eftir mömmu, hún heitir Mabrúka (Mabrouka á arabísku). Mér fannst það skrítið vegna þess að nafnið hennar mömmu og of persónulegt en það var ekkert sem passaði vel nema Mabrúka svo það var niðurstaðan að lokum og ég er alsæl.“

Safa lagði mikla áherslu á að hafa umbúðirnar umhverfisvænar.

„Við erum mjög lánsöm með hönnuðinn okkar, Hönnu, sem er virkilega hugmyndarík og frábær samstarfsaðili. Saman tókst okkur að hanna flott vörumerki og lógó. Eitt af erfiðustu verkefnum var að finna umhverfisvænar og flottar umbúðir. Flestir eru að nota plast eða gler. Okkur langaði ekki að nota plast og eftir langa leit og vangaveltur kom hugmyndin um að nota viðarstauka. Við fundum aðila sem er að framleiða viðarstauka úr ólífutrjám. Hugmyndin var að við myndum nota viðarstauka og áfyllingu í pappírspokum. Viðskiptavinir kaupa því bara einu sinni viðarstauk eftir tegund og svo áfyllingu í pappírspoka. Þetta er umhverfisvæn og sjálfbær aðferð.“