Tolli Morthens, lista- og hugsjónamaður, er nú staddur í Argentínu þar sem hann klífur eitt hæsta fjall heims, fjallið Aconcagua sem liggur að landamærum Síle.
Tolli, Arnar Hauksson og leiðsögumaður þeirra Sebastian Garcia lögðu af stað úr síðustu búðum fjallsins Aconcagua á föstudagsmorgun að staðartíma og samkvæmt ferðaáætlun ætla að þeir að vera á toppnum á fjallinu einhvern tímann í dag. Fjallið er hæsta fjall Suður Ameríku og í raun hæst allra fjalla utan fjallanna í Asíu. Fjallið er hluti af Andes fjöllunum og rís hæst í 6961 metra.
Leiðangurinn er farinn til að vekja athygli á starfsemi Batahúss sem tók til starfa á síðasta ári og um leið safna áheitum fyrir starfsemina. Batahús er einstaklingsmiðað bataúrræði við enda afplánunar þar sem einstaklingum er boðin heimilisaðstaða til allt að tveggja ára eða eftir atvikum til skemmri tíma. Unnið er með einstaklingum á jafningjagrundvelli út frá hugmyndum um áfallamiðaða nálgun. Báðir eru Tolli og Arnar í stjórn Batahúss.
„Þetta verður fyrir mig, mikil bata og sáttar ganga, en við tileinkum gönguna Batahúsinu og þá er meiningin að safna pening með áheitum í Sollu-sjóðinn sem styður við starfsemi hússins.” sagði Tolli í nýársfærslu sinni á Facebook. „ Fyrir utan ýmsa eðlilega fyrirvara á svona fjallgöngu þá er óvissan gríðarleg með það hvert Covid faraldurinn fer með þetta. Falla flug niður, lokast landamæri eða veikjast menn í búðum á fjallinu og fleira í þeim dúr. Við eru staðráðnir í að leggja inn fyrir góðu ári.”
Tolla eru áramótin og nýárið ofarlega í huga því hann byrjar færsluna á því að segja að það sé áratuga hefð hjá honum að labba á fjall á Nýársdag meðal annars til að standa með víðsýni fyrir framan. "Þarna mitt á milli þessara fleka fortíðar og framtíðar stingur núvitundin upp kollinum eins og lítið ljós sem með árunum hefur orðið sterkara og bjartara eftir því sem maður æfir hana oftar og hjálpar manni með skilning og sátt í að skilja allt það sem hefur hrúgast upp í kjölfari manns á langri leið."
Sollusjóður var stofnaður af Bata góðgerðarfélagi og er hlutverk hans að styrkja skjólstæðinga Batahúss með fjárhagslegum hætti til þess m.a. að sækja sér sérfræðiaðstoð hjá til að mynda sálfræðingum, fíknifræðingum og öðrum fagaðilum. Jafnframt styrkir Sollusjóður nám, námskeið, ýmis konar fræðslu og tannlæknakostnað svo eitthvað sé nefnt.
Sollusjóður er sjálfstæður sjóður og eru stjórnarmenn þrír talsins sem taka ákvörðun um styrkveitingar. Frekari upplýsingar um félagið má finna á heimasíðunni www.batahus.is
Óski styrkveitendur eftir frekari upplýsingum er hægt að senda fyrirspurn á bati@batahus.is
Kennitala félagsins er 630921-1390
Reikningsnúmerið er 0537-26-7487