Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir ákvörðun um að hætta rekstri eftirlitsflugvélar gæslunnar vera stórt skref aftur á bak. Hann segir Landhelgisgæsluna telja veru vélarinnar vera þjóðaröryggismál.

Fjallað er um umrædda ákvörðun í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni, en ástæðan fyrir henni er hagræðing.

„Í bréfi sem dómsmálaráðuneytið sendi Landhelgisgæslunni fyrr í vikunni var tilkynnt um þessa ákvörðun og lagt fyrir Landhelgisgæsluna að undirbúa söluferli vélarinnar.“ segir í tilkynningunni, en þar kemur fram að rekstur Landhelgisgæslunnar hafi reynst erfiður undanfarna mánuði sökum gífurlegra olíuverðshækkana og meira umfangs.

Fréttablaðið/Aðsend

Fram kemur í tilkynningunni að í apríl í fyrra hafi Georg upplýst dómsmálaráðuneytið um að forsendur rekstraráætlunar Landhelgisgæslunnar væru brostnar. Fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar á fjárlögum þessa árs voru auknar um 600 milljónir króna. Í tilkynningunni segir að það hafi ekki reynst nóg vegna rekstrarhalla síðasta árs nema gripið yrði til aðgerða sem kæmu niður á lögbundnum hlutverkum og viðbragðsgetu stofnunarinnar.

,,Þegar ljóst var að stofnunin fengi ekki frekari fjárframlög tók við samtal við dómsmálaráðuneyti um hvaða leiðir væru færar til að koma fjárhag Landhelgisgæslunnar á réttan kjöl. Enginn góður kostur var í stöðunni og það eru okkur sár vonbrigði að neyðast til að hætta rekstri eftirlitsflugvélarinnar en hún er sérútbúin eftirlits-, björgunar- og sjúkraflugvél og mikilvæg eining í almannavarnakeðju landsins.“ segir Georg um málið.

„Frá árinu 1955 hefur Landhelgisgæslan gert út flugvél til eftirlits og björgunarstarfa við Íslandsstrendur. Ákvörðunin nú er því mikil afturför í viðbragðs- og ekki síst eftirlitsgetu þjóðarinnar. TF-SIF er ein af mikilvægustu einingunum í viðbragðskeðju stofnunarinnar og með þessari erfiðu ákvörðun er stórt skarð höggvið í útgerð Landhelgisgæslunnar. Þá teljum við veru flugvélarinnar hér á landi vera brýnt þjóðaröryggismál, sér í lagi í ljósi breyttrar heimsmyndar.“ segir Georg.