Stella sem festi kaup á íbúðinni í vor, hefur hannað og innrétta hana eftir draumastíl þeirra hjóna og er útkoman glæsileg. „Hönnun íbúðarinnar er stílhrein og tímalaus. Hönnun í mínum huga er að samræma bæði ytra og innra útlit hússins, þar sem öll smáatriði skipta ekki síður máli en heildarmyndin sjálf,“segir Stella sem naut þess að gera íbúðina að þeirra.
Stella veit fátt skemmtilegra en að bjóða vinum og vandamönnum heim og þá er eldhúsið og borðstofan aðalatriðin. „Við elskum að bjóða gestum heim í mat og bröns og því lögðum við mikla áherslu á vera með rúmgóða borðstofu,“segir Stella en þegar gengið er inn í íbúðina blasir stór og björt borðstofa við í opnu og miklu rými. Í framhaldi af því opna rými er svo stofan. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég er með eyju og ég er ótrúlega ánægð með hana, bæði nýtinguna og stálið sem við völdum,“segir Stella og bætir því við að hinum megin við eyjuna nýtist gluggasyllurnar sem sæti og þar geti gestirnir setið og fengið drykk.

Stílhreint eldhús með rúmgóðri eyju.

Eldhúsið býður upp á þann möguleika að hafa það opið og loka því svo alveg af, hreinir töfrar sem hér gerast.

Hér nýtast opnar hillur í búrskápnum vel undir leirtau sem er mest notað .

Stella segir að stofunni sé ætlað að bjóða fólk velkomið, stórar kertaluktir skapi notalega stemningu og vellíðan.

Hefðarkötturinn á heimilinu nýtur sín á besta stað.

„Barnaherbergið þarf að vera aðlagandi og notalegt, hér upplifir dóttir mín öryggi og hlýju innan um hluti sem hún heldur mest upp á.“

Svefnherbergið er ekki síður mikilvægt en önnur rými hússins. Fátt betra að koma heim að kvöldi í fallega uppbúið rúm.

Stellu finnst blóm vera orkugefandi og breyta umhverfinu til hins betra.