Í vikunni var tilkynnt um að Daði Már Kristófersson hagfræðiprófessor hefði tekið við starfi aðstoðarrektors Landbúnaðarháskóla Íslands út skólaárið. Síðustu mánuðir hafa því verið tíðindamiklir því Daði Már var kjörinn varaformaður Viðreisnar í september. Hann hyggst sækjast eftir efstu sætum flokksins í komandi þingkosningum. Hann er kvæntur Ástu Hlín Ólafsdóttur ljósmóður og eiga þau saman fjögur börn.

Daði er fæddur í Reykjavík en flutti ungur að aldri að Reykholti í Borgarfirði þar sem foreldrar hans, Kristófer Már Kristinsson og Margrét Gunnarsdóttir, störfuðu við kennslu. Hann er eitt fjögurra systkina. Ágústa er forstöðumaður Hafnarborgar, Gísli dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri og Gunnar Tómas doktorsnemi í kvikmyndafræði.

Góð pólitísk blanda

„Ég ólst upp við mikla pólitík. Pabbi var varaþingmaður fyrir Bandalag jafnaðarmanna árin 1983-1986 en þræði Sjálfstæðisflokksins mátti finna í móðurfjölskyldunni og Samfylkingarinnar í föðurfjölskyldunni,“ segir Daði. Hann segir að um ágætis pólitískan bræðing hafi verið að ræða en pólitík átti eftir að setja enn meiri svip á fjölskyldulífið.

Foreldrar Daða skildu að skiptum og seinni kona Kristófers föður hans er Valgerður Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Benediktssonar fyrrverandi forsætisráðherra, sem sat á þingi fyrir Samfylkinguna um langt skeið.

„Ég kunni afar vel við mig í sveitinni og hefði alveg getað hugsað mér að búa þar áfram,“ segir Daði sem flutti með fjölskyldunni til Reykjavíkur þrettán ára. Sveitin hafði sáð fræjum sínum í huga Daða.

„Ég var harðákveðinn í því að verða dýralæknir og sótti um inngöngu í danska dýralæknaskólann,“ segir Daði. Hann fékk þó ekki inngöngu og örlögin höguðu því þannig að í stað þess að huga að heilsu dýra endaði hann í fræðasamfélaginu.

Eftir að hafa verið synjað um inngöngu í dýralæknanámið ákvað Daði að skrá sig í praktískt nám á meðan hann íhugaði næstu skref. Hann skellti sér því í Landbúnaðarháskóla Íslands og lauk námi í búvísindum. Hann segist hafa verið mjög óráðinn á þessum tíma og skipt nokkrum sinnum um skoðun um hvaða stefnu skyldi taka. „Ég tók síðan viðbótarkúrsa í hagfræði í Háskóla Íslands með fram náminu eftir hvatningu Bjarna Guðmundssonar prófessors og líkaði það vel.“

Norski Hægri flokkurinn

Árið 1998 flutti hann síðan út til Noregs og hóf nám við Norska lífvísindaháskólann. „Þar sat ég kúrsa í auðlindahagfræði og kynntist hagfræðiprófessornum Kyrre Rickertsen. Þau kynni urðu til þess að ég ákvað að leggja hagfræðina alfarið fyrir mig. Ég fékk styrk frá norska útflutningsráði sjávarafurða til að fara í doktorsnám ytra og Rickertsen var leiðbeinandi minn í náminu sem ég lauk 2005,“ segir Daði.

Eftir námið starfaði hann úti í Noregi í eitt ár en kom síðan heim og fékk starf sem sérfræðingur hjá Bændasamtökunum. „Ég hafði kynnst Ragnari Árnasyni, prófessor í fiskhagfræði, þegar ég var á Hvanneyri og hann hafði samband við mig þegar vantaði kennara í hagrannsóknum. Í kjölfarið fékk hann mig til starfa hjá Hagfræðistofnun,“ segir Daði.

Í starfi sínu hjá Bændasamtökunum hafði hann unnið með Einari Sigurðssyni, forstjóra Mjólkursamsölunnar á þeim tíma. Þannig kynntist hann eiginkonu Einars, Kristínu Ingólfsdóttur háskólarektor. Það kveikti áhuga hans á að sækja um stöðu sviðsforseta Félagsvísindasviðs hjá Háskólanum, sem hann fékk.

„Það má því segja að þessi starfsferill minn hafi ekki verið fyrir fram mótuð stefna. Ég hef hins vegar verið svo farsæll að kynnast áhugaverðum og öflugum einstaklingum sem hafa haft áhrif á mig og veitt mér innblástur og þannig fetaði ég þessa hagfræði- og háskólabraut,“ segir Daði.

Þrátt fyrir pólitískt uppeldi var hann ekki virkur í neinu pólitísku starfi þar til að hann kom að stofnun Viðreisnar árið 2016.

„Pólitík á Íslandi hefur í raun þróast með öðrum hætti en á hinum Norðurlöndunum. Þar ytra eru stórir og öflugir jafnaðarmannaflokkar en sem mótvægi við þá eru einnig öflugir borgaralegir flokkar. Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi var einn um hituna á hægrivæng íslenskra stjórnmála lengi vel og þegar ég kom heim frá Noregi þá saknaði ég valkostar á borð við Hægri flokkinn í Noregi,“ segir Daði Már.

Brá að sjá keyrsluna hér á landi

Hann segir að það hafi verið mikil viðbrigði að koma heim til Íslands árið 2006 eftir rúm sjö ár í Noregi. „Manni brá auðvitað að sjá keyrsluna sem var í gangi hérlendis. En ekki síður hvað það var lítið rými fyrir efasemdir um að þessi uppgangur væri sjálfbær,“ segir Daði.

„Ég hef alltaf séð eftir því að hafa ekki lýst skoðun minni á meðan atburðirnir voru í gangi frekar en í baksýnisspeglinum. Að mínu mati hvílir á okkur sú skylda, sérstaklega þeim sem hafa getað farið í nám með aðstoð samfélagsins, að rýna í þjóðfélagið til gagns og segja okkar skoðanir,“ segir Daði.

Sú eftirsjá má segja að hafi gert það að verkum að Daði hóf þátttöku í stjórnmálum í liði Viðreisnar. Hann tók þátt í starfi Já-Ísland-hreyfingarinnar sem snerist um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og kynntist þar Benedikt Jóhannessyni, fyrsta formanni Viðreisnar, og núverandi þingmanni flokksins Jóni Steindóri Valdimarssyni.

„Það starf leiddi síðan til þess að ég tók þátt í stofnun Viðreisnar enda fannst mér þarna kominn fram flokkur sem væri á svipuðum slóðum og Hægri flokkurinn í Noregi sem að hugnaðist mér vel. Ég hafði hins vegar lítinn áhuga á að leitast eftir þingsæti. Ég þekkti það vel að sá starfsvettvangur er krefjandi og fannst það því ekki henta mér á þeim tíma. Ég tók sæti í stjórn flokksins og hafði bara metnað fyrir því að hjálpa til þess að ná góðum úrslitum í fyrstu kosningunum sem gekk eftir,“ segir Daði.

Hann kynntist þó stjórnmálastarfinu enn frekar í gegnum Háskólann. „Eins og margir aðrir innan félagsvísindanna á háskólastigi þá hef ég komið að margs konar ráðgjöf fyrir stjórnvöld. Til að mynda vinnu við að skrifa skýrslur og lagafrumvörp eða gefa álit mitt í slíkum plöggum,“ segir Daði sem helst hefur komið að vinnu við auðlindamál.

Sátt mikilvæg í auðlindamálum

„Það er fyrst og fremst vegna þess að ég hef mest vit á þeim málaflokki vegna náms míns og reynslu. Ég held að Ísland hafi á margan hátt borið gæfu til að nýta auðlindirnar vel þó að ósætti sé um fyrirkomulagið. Sátt er afar mikilvæg um hvernig við nýtum og ráðstöfum þessum auðlindum.“

Hann segir að hans upplifun sé sú að íslenskir stjórnmálamenn í öllum flokkum séu í meginatriðum nokkuð sammála. „Nemandi minn sem var hálfur Bandaríkjamaður sagði mér að sér þætti íslensk stjórnmál óbærilega leiðinleg því allir eru svo sammála,“ segir Daði og hlær.

Hann segir að nýtt yfirvofandi hrun sökum kórónaveirunnar hafi gert það að verkum að hann gaf kost á sér til varaformennsku í Viðreisn og að það sé ekkert launungarmál að hann stefni á eitt af toppsætum flokksins í þingkosningum á næsta ári.

„Óvissan er mikil og þessi staða gæti reynst okkur erfið. Þetta er öðruvísi krísa en sú sem kom í kjölfar hrunsins 2008 og ég tel afar mikilvægt að vel sé haldið á spöðunum. Ég er sannfærður að mín reynsla geti nýst vel í því verkefni,“ segir Daði.