Jarðskjálftarnir á Reykjanesi fóru eflaust ekki fram hjá mörgum en meðal þeirra sem fundu fyrir skjálftunum var Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir á Landspítala, sem var í miðri aðgerð þegar stóru skjálftarnir riðu yfir.
„Í dag fór hjarta sem við vorum búnir að stöðva allt í einu að skjálfa í miðri aðgerð - og reyndar skurðstofan öll og líka við sjálfir,“ segir Tómas í færslu á Facebook um málið en að hans sögn var skjálftinn það mikill að sprungur mynduðust á veggjum.
„Þetta voru alvöru skjálftar og á veggjum legudeildarinnar mynduðust myndarlegar sprungur. Það var ekkert í stöðunni að taka píratann á þetta og aðgerðin - sem tókst að óskum - kláruð í eftirskjálftum,“ segir Tómas enn fremur.
Þrátt fyrir að skjálftarnir sjálfir í miðri aðgerð hafi verið mikið mál lýsir Tómas því að upplifunin hafi verið enn furðulegri fyrir sænskan lækni sem var viðstaddur. „Hann hafði aldrei upplifað jarðskjálfta – hvað þá í hjartaaðgerð!“
Með færslunni birtir Tómas mynd af læknateyminu sem stóð að baki aðgerðarinnar auk þess sem hann birti „heimagert“myndband þar sem atvikið sjálft náðist ekki á myndband.
Í dag fór hjarta sem við vorum búnir að stöðva allt í einu að skjálfa í miðri aðgerð - og reyndar skurðstofan öll og...
Posted by Tomas Gudbjartsson on Miðvikudagur, 24. febrúar 2021