Skíðamaður slasaðist eftir að hafa lent í snjóflóði ofan við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli.
Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá.
Viðbragðsaðilar fengu tilkynningu á Akureyri laust eftir klukkan 13 í dag og var aðgerðastjórn virkjuð. Björgunarsveitin Súlur á Akureyri var kölluð út til aðstoðar daglegum viðbragðsaðilum.
Skíðamaðurinn sem lenti í snjóflóðinu var með þremur öðrum í för sem komu honum til aðstoðar en hann grófst ekki í flóðinu en var slasaður eftir það.
Með aðstoð starfsmanna í Hlíðarfjalli voru sjúkraflutningamenn fluttir á slysavettvang þar sem þeir bjuggu um hinn slasaða til flutnings sem var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akureyri.
Ekki er vitað um ástand hins slasaða að svo stöddu.