Rafmagn komst aftur á á Akranesi um sexleytið í kvöld, en rafmagnslaust varð í Grundahverfi, íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum, Ásabraut og Leynisbraut á öðrum tímanum í nótt vegna háspennubilunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Veitum.
„Starfsfólk Veitna fór strax á staðinn, bilunin var staðsett og viðgerð hófst. Ekki er vitað nákvæmlega hvað olli háspennubiluninni, en hún reyndist viðameiri en talið var í fyrstu. Hún kom í raun upp á tveimur stöðum og voru aðstæður erfiðar. Viðgerð lauk um kl. 18:00 og nú eru allir íbúar Akraness komnir með rafmagn á ný,“ segir í fréttatilkynningunni.