Þrátt fyrir að Hafnarfjarðarbær hafi ítrekað komið því á framfæri við félags- og vinnumarksráðuneytið að bærinn geti ekki tekið á móti fleira flóttafólki í bili hefur flóttafólki án samnings við bæjarfélagið fjölgað um nokkur hundruð á síðustu vikum.

Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar en þar segir jafnframt að fólkið sé búsett í úrræðum sem Útlendingastofnun hafi komið upp í bæjarfélaginu án samráðs við bæjaryfirvöld. Bærinn sé kominn að þolmörkum, sérstaklega hvað stuðning til barna varðar og að hátt í 200 flóttabörn séu nú í grunn- og leikskólum Hafnarfjarðar.

Engum árangri skilað

Hafnarfjarðarbær hefur frá árinu 2015 verið eitt þriggja sveitarfélaga sem hafa gert samning við ríkið um móttöku einstaklinga sem eru í leit að alþjóðlegri vernd. Þá hefur bærinn tekið á móti stórum hópi flóttafólks í gegnum samræmda móttöku að því er fram kemur í ályktun bæjarstjórnar.

Bæjarstjórnin segir það koma skýrt fram í erindum bæjarins til ráðuneytisins að bærinn geti ekki tekið við fleira flóttafólki og veitt því þá þjónustu sem lögum samkvæmt búsetusveitarfélagi ber að gera.

„Þar sem viðræður og erindi til ráðuneytisins og Útlendingastofnunar hafa ekki skilað árangri, er ábyrgðinni á veitingu þjónustunnar hér með vísað til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.“

Ríkið standi undir ábyrgð

Í ályktuninni segir að ríkið verði að standa undir sinni ábyrgð í málinu og koma til móts við bæjarfélög sem hafi tekið að sér móttöku flóttafólks.

„Bæjarfélaginu ber lögum samkvæmt að gæta hagsmuna allra barna sem nú þegar eru í leik- og grunnskólakerfinu.

Vegna skorts á samráði þola innviðir sveitarfélagsins hins vegar ekki frekari fjölgun flóttafólks án samnings og óskar Hafnarfjarðarbær því eftir því að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið taki ábyrgð á því að viðeigandi þjónustu við flóttafólk verði sinnt,“ segir að lokum í ályktun bæjarstjórnar.