Steinar Immanúel Sörensson, eitt Hjalteyrarbarnanna, segir að sér hafi borist nýjar og sláandi upplýsingar frá lögmanni í gær, sem kunni að skýra hvers vegna rannsókn á barnaheimilinu á Hjalteyri við Eyjafjörð hafi ekki farið fram á sínum tíma eða hún jafnvel verið stöðvuð. Hann telur upplýsingarnar mjög trúverðugar.

„Þetta eru upplýsingar um að Hjalteyrarmálið hafi verið þaggað niður þar sem um þjóðþekktan einstakling hafi verið að ræða. Einstakling sem að nokkru leyti bar ábyrgð á að svo fór sem fór og að málið var ekki upplýst á sínum tíma,“ segir Steinar.

„Mér brá mjög illa, því mig hefur alltaf grunað að eitthvað ósagt stæði í veginum fyrir því að rannsóknin færi fram,“ segir Steinar. „Mig hefur grunað þetta í mörg ár, allt frá því að ég hóf baráttuna fyrir því að réttlætið fengi framgang, en mig óraði aldrei fyrir að mögulega væri verið að halda hlífiskildi yfir opinberri persónu á kostnað okkar barnanna,“ bætir hann við.

Tímabilið sem Steinar vísar til er þegar rannsóknir stóðu sem hæst á öðrum barnaheimilum með vinnu Vistheimilanefndar. Lauk þeirri rannsókn í sumum tilvikum með afsökunarbeiðni og sanngirnisbótum. Ekkert var aðhafst vegna Hjalteyrarheimilisins.

Þá segir Steinar að bjartsýni hafi kviknað eftir að ráðherrar töluðu fyrir því í síðustu viku að málið yrði tekið upp með nýrri rannsókn. Með ráðherraskiptunum nú upplifi Hjalt­eyrarbörnin nýja óvissu.

„Við viljum fá loforð frá nýjum dómsmálaráðherra um að málið verði ekki aftur látið hverfa. Ótti okkar liggur í því að málið verði aftur látið falla milli skips og bryggju,“ segir Steinar.