Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, lýsir yfir hættustigi á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum.
Í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra kemur fram að ákveðið hefur verið að rýma ákveðin svæði á Seyðisfirði vegna áframhaldandi úrkomuspár. Rýmingu skal lokið í kvöld klukkan sjö.
Um eftirtalin hús á Seyðisfirði er að ræða:
- Öll hús við Botnahlíð
- Múlavegur 37
- Baugsvegur 5
- Austurvegur 36, 38b, 40b, 42, 44, 44b, 46b, 48, 50, 52, 54 og 56.
- Fossgata 4, 5 og 7
- Múli
- Hafnargata 10, 11, 12, 14, 15, 16b og 18c
Í kvöld og nótt er spáð ákafri úrkomu á Austfjörðum í austan- eða norðaustanátt, meðal annars á Seyðisfirði. Spáð er að uppsöfnuð úrkoma á Seyðisfirði geti jafnvel orðið yfir 60 mm sem leggst við 70 mm úrkomu og leysingar frá því á laugardag. Reiknað er með því að það byrji að rigna upp úr hádegi en mestri ákefð er spáð milli klukkan sex og miðnættis í kvöld. Hitastig er núna yfir frostmarki í fjallahæð og talsverð leysing hefur verið síðan um helgina.
Fram kemur í tilkynningunni að þessi rýming sé gerð í varúðarskyni þar sem óvissa er um stöðugleika hlíðanna í Botnabrún eftir skriðuföllin í desember 2020 og hvernig jarðlög bregðast við ákafri úrkomu. Rýmt er til að byrja með við minni rigningu og/eða leysingu en áður, þar til meiri reynsla fæst á stöðugleika hlíðarinnar.
Þessi reynsla fæst með því að fylgjast með því hvernig jarðlög bregðast við úrkomu í kjölfar skriðuhrinunnar í desember og einnig er verið að byggja upp reynslu á túlkun gagna úr nýjum mælitækjum.
Staða rýmingar verður endurmetin á morgun, en búist er við hægt kólnandi veðri á miðvikudag og á fimmtudag verður aftur komið frost til fjalla.
Fjöldahjálparstöðin í Herðubreið verður opin eins og þörf þykir.
Fréttin hefur verið uppfærð.