Níu verða í framboði hjá Framsóknarflokknum í Norðausturkjördæmi í póstkosningu munu valdagar standa frá 1.-31. mars 2021. Kosið verður um sex efstu sætin. Oddiviti í kjördæminu hefur verið Þórunn Egilsdóttir, fyrrverandi þingflokksformaður en hún hættir á þingi. Flokkurinn náði tveimur inn í síðustu kosningum.
Í framboði eru:
Ingibjörg Ólöf Ísaksen, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Akureyri – sækist eftir 1. sæti.
Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Fáskrúðsfirði – sækist eftir 1. sæti.
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri, Fjarðabyggð – sækist eftir 2. sæti.
Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og varaþingmaður, Grýtubakkahreppi – sækist eftir 2. sæti.
Helgi Héðinsson, oddviti, Skútustaðahreppi – sækist eftir 2.-3. sæti.
Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi, Kelduhverfi – sækist eftir 2.-4. sæti.
Karítas Ríkharðsdóttir, blaðamaður, Raufarhöfn – sækist eftir 3.-4. sæti.
Halldóra Hauksdóttir, lögmaður, Akureyri – sækist eftir 4.-6. sæti.
Jónína Brynjólfsdóttir, viðskiptalögfræðingur, Egilsstöðum – sækist eftir 4.-6. sæti.