„Ég útskrifaðist í júní 2019 úr Listaháskóla Íslands og flutti út til Bretlands í kjölfarið, en unnusta mín var þar í námi í kvikmyndaframleiðslu. Hún útskrifaðist í febrúar 2020 og við ætluðum að taka ár úti og reyna við bransann. Svo kemur Covid svo þetta var því miður skammlíft. Þetta var ævintýri, en við enduðum á því að flytja heim,“ segir Jónas Alfreð Birkisson, sem lék nýverið í sjónvarpsseríunni 1899, sem er að gera allt vitlaust á streymisveitunni Netflix.
Að sögn Jónasar líður honum betur á Íslandi og því hafi flutningurinn heim gert honum gott. Hér ríki meiri samstaða meðal leikara en ekki stöðug samkeppni.
„Mér finnst bransinn hér heima miklu meira „faðmlag“ heldur en bransinn úti. Þar eru allir að berjast um olnbogapláss inn í þessa stóru maskínu sem kvikmyndabransinn er á Englandi. Hérna er þetta miklu meira stuðningur og hjálp. Maður er kannski að prufa fyrir sömu hlutverk og vinir hérna heima, en það er ekkert nema stuðningur og fólk hvetur hvert annað áfram,“ segir Jónas.
Fyrsta hlutverkið sem Jónas landaði hér á landi var í sjónvarpsþáttaröðinni um Stellu Blómkvist árið 2021, sem ætti að vera flestum Íslendingum vel kunn. Jónas segir að þótt hlutverkið hafi verið í smærri kantinum hafi það verið skref í áttina að einhverju stærra.
„Ég fæ þetta hlutverk í þáttunum sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra. Það er nafnið á karakternum. Hann fékk ekki nafn og hét bara þetta. En þrátt fyrir að hlutverkið hafi kannski verið í mýflugumynd má segja að það hafi verið fyrsta skrefið í að gera þetta að einhverri stærðargráðu,“ segir Jónas.
„Mér finnst bransinn hér heima miklu meira „faðmlag“ heldur en bransinn úti. Þar eru allir að berjast um olnbogapláss inn í þessa stóru maskínu sem kvikmyndabransinn er á Englandi“
Harkaði í ár
Þá hafi tekið við ár þar sem hann hafi verið að harka í bransanum, án árangurs.
„Ég var í tæpt ár að reyna og reyna og fékk engin hlutverk og enga vinnu. Þetta var endalaust af prufum og ég fékk endalaust af nei-um. Ég var samt búinn að ásetja mér að gera þetta af fullum krafti þannig að ég var ekki að vinna við neitt annað. Ég setti alla einbeitingu í þetta. Og að lokum fékk ég þessa prufu fyrir sjónvarpsþáttaröð sem heitir 1899, fyrir karakter sem er norskur og heitir Einar,“ segir Jónas.
Þáttaröðin 1899 er úr smiðju leikstjórans Baran bo Odar og handritshöfundarins Jantje Friese, þeirra sömu og gerðu þættina Dark, sem eru mörgum Netflix-aðdáendum án efa vel kunnir.
Jónas segir tækifærið til að leika í þáttunum langþráð, en hann hafði verið að reyna fyrir sér sem leikari um nokkurn tíma, bæði hér á landi og í Bretlandi.
Sögusvið 1899 er um borð í skipi sem er á leið frá Lundúnum til fyrirheitna landsins, Ameríku, um aldamótin 1900. Söguþráðurinn fylgir fjölda fólks af hinum ýmsu þjóðernum, sem allt á það sameiginlegt að þrá betra líf í landi tækifæranna.
Tökur hófust í Berlín í Þýskalandi í maí í fyrra og stóðu fram í byrjun nóvember.

Talað á níu tungumálum
Jónas segir tímann ytra hafa verið einstaklega skemmtilegan, þrátt fyrir tíðar ferðir til Berlínar með tilheyrandi Covid-prófum, sóttkvíum og sóttkvíarhótelum.
„Þetta var æðislegur tími. En það er eitt sem er mjög áhugavert við þessa þætti, sem er að þeir eru fjölþjóðlegir. Það er leikið á ótrúlega mörgum tungumálum, mjög ólíkt því sem gerist oft í svo stórum verkefnum þar sem allir tala ensku, sama hvaðan þeir eru. Þarna er bara haldið í sannindin, þannig að ef þú ert frá Portúgal, þá talar þú bara portúgölsku og þú skilur ekkert endilega þýsku,“ segir Jónas og heldur áfram:
„Ég er til dæmis að leika á norsku og Danirnir leika á dönsku. Norðmaðurinn og Daninn skilja hvor annan en þeir skilja ekki Frakkann.“
Tungumálin sem eru töluð í þáttunum eru níu talsins, allt frá kínversku og portúgölsku til ensku og dönsku. Jónasar segist hafa verið mjög stressaður yfir því að vera með íslenskuskotna norsku.
„Það voru tungumálafulltrúar á tökustað sem töluðu tungumálin sem við vorum að leika á, til þess að þýða fyrir leikstjórann. Hann er þýskur og talar náttúrulega ekki öll þessi tungumál. Og ef hann var ánægður með leikinn gat hann spurt þennan fulltrúa hvort textinn og flutningurinn hefði verið í lagi. Ég var aðallega stressaður yfir að ég myndi vera með geggjaðan íslenskan hreim á norskunni minni, en allt ferlið fékk ég engar athugasemdir,“ segir Jónas.
Eftir að þættirnir komu út hafi hann svo heyrt frá Norðmanni, sem hefur umsjón með vali á leikurum, að hann hafi verið mjög sannfærandi sem Norðmaður.
„Ég er alinn upp í Noregi og fæddist þar, þannig að ég náði því ágætlega að leika á norsku. Báðir foreldrar mínir voru úti í námi þegar ég fæddist og við bjuggum þar þangað til ég var þrettán ára, með stuttum stoppum hér og þar. Ég byrjaði minn leiklistarferil í raun og veru þar, en ég var í barna- og unglingaleikhóp frá átta ára aldri og þangað til ég flutti heim,“ segir Jónas og bætir við:
„Þannig að uppvaxtarárin hjálpuðu til að halda í norskuna, þrátt fyrir að orðaforðinn hjá mér sé kannski svolítið táningslegur.“
Þakklátur fyrir tækifærið
Jónas segist gríðarlega stoltur og þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni. Hann sé í skýjunum með viðtökurnar eftir að þáttaröðin kom út á Netflix.
„Ég er samt ekki beint sjóaður í þessu, að vita hvað eru góðar viðtökur á Netflix og hvað ekki, en þetta var vinsælasta sjónvarpsefnið þar í síðustu viku og var númer eitt í einhverja sex daga þegar ég tékkaði síðast, af þeim níutíu löndum sem Netflix tekur sinn gagnagrunn út frá. Sem er náttúrulega bara ótrúlegt,“ segir Jónas og bætir við:
„Það var nánast allur heimurinn að horfa á 1899 í síðustu viku – og það er náttúrulega bara sturlað. Fyrstu fjóra dagana var áttatíu milljónum klukkustunda streymt af 1899 um allan heim. Það er bara magnað og ég er svo þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu,“ segir Jónas.
„Fyrstu fjóra dagana var áttatíu milljónum klukkustunda streymt af 1899 um allan heim. Það er bara magnað“
Spennandi verkefni fram undan
Jónas er með mörg járn í eldinum þessa dagana, en hann hefur verið iðinn við kolann í leiklistinni síðustu mánuði. Hann segir mörg spennandi verkefni fram undan, en þó megi hann ekki tala um nokkur þeirra að svo stöddu.
„Ég get alveg talað um það sem ég er búinn að leika í, en ekki það sem er að koma. Ég vil ekki „jinx-a“ það sem er ókomið. En ég var í tökum í Ungverjalandi á þætti sem heitir FBI International, en hann kemur út í desember. Síðan er bíómynd sem er að koma á Netflix, Heart of Stone, sem Gal Gadot leikur í og var í tökum hérna heima líka, en ég var í smá hlutverki í þeirri mynd,“ segir Jónas og heldur áfram:
„Ég fór út til Bretlands til að leika í myndinni og á móti stórstjörnu eins og Gal Gadot, sem var dálítið fyndin upplifun. Að hitta einhvern sem maður hefur séð hundrað sinnum á skjánum – og svo er hún þarna, og ég líka,“ segir Jónas.
Þá var Jónas að leika í sinni fyrstu íslensku bíómynd sem ber heitið Natatorium og kemur út á næsta ári. Myndinni er leikstýrt af Helenu Stefánsdóttur, en hún skrifar einnig handritið.
Jónas segir bjarta tíma fram undan, en fyrst og fremst finni hann fyrir þakklæti fyrir þau tækifæri sem hann hafi fengið síðastliðið ár. Slík tækifæri séu alls ekki gefin.
„Þetta er ein af áhættunum þegar maður ákveður að verða leikari, því það eru aðrir sem ráða því hvort ég er ráðinn í verkefni eða ekki. En þetta er ótrúlega skemmtilegt og ég er búinn að eiga sjúklega viðburðaríkt ár og er mjög spenntur fyrir því sem koma skal,“ segir Jónas.
