Greiningardeildir bankanna búast við stýrivaxtahækkun Seðlabankans á næsta vaxtaákvörðunardegi, sem er á miðvikudaginn. Ástæðan fyrir þessu er mikil hækkun vísitölu neysluverðs nú í janúar.

Í Fréttablaðinu í gær sagði Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, að vegna þess að verðbólgan í janúar er fyrst og fremst tilkomin vegna gjaldskrárhækkana hins opinbera sé janúarmælingin ekki kúvending á verðbólguhorfum þó að þær hafi lítillega versnað.

Erna sagði enn fremur að vaxtahækkun nú hjá Seðlabankanum hefði þau áhrif að þrátt fyrir að húsnæðisverð sé tekið að lækka muni hin reiknaða húsaleiga, sem vegur þungt í mælingu vísitölunnar, áfram hækka.

„Hið opinbera spornar gegn verðbólgu með ríflegum gjaldskrárhækkunum.“

Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka.

Á mannamáli þýðir þetta að vaxtahækkanir Seðlabankans hafa bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og eru þar með sjálfstæður verðbólguvaldur.

Í pósti sem Erna Björg sendi frá sér eftir að Hagstofan birti vísitölu neysluverðs fyrir janúar segir:

„Hið opinbera spornar gegn verðbólgu með ríflegum gjaldskrárhækkunum (gróflega áætlað 0,7-0,8% áhrif á VNV): Gjaldskrárhækkanir í janúar eru engin nýlunda. Á síðustu árum hefur verið reynt að stilla hækkunum í hóf til að stuðla að verðstöðugleika en í ljósi mikillar verðbólgu ákvað hið opinbera að nú dygðu engin vettlingatök, hækka skyldi krónutölugjöld um 7,7%, leggja á ofangreint 5% vörugjald á allar nýjar fólksbifreiðar og hækka almennt allar gjaldskrár um 5-7%.“

Hvöss gagnrýnin á stjórnvöld í þessum orðum leynir sér ekki. Erna bætir við:

„Áhrifin á VNV dyljast engum: Áfengi og tóbak hækkaði um 5,5% (0,13% áhrif á VNV), hitaveita hækkaði um 6% (0,12%), sorphreinsun um 12,3% (0,07% áhrif á VNV), eldsneyti um 0,7% (0,03% áhrif á VNV), grunnskólar um 5,9% (0,01% áhrif á VNV) og leikskólar um 5,7% (0,02% áhrif á VNV), svo fátt eitt sé nefnt! Bætum við stórum hluta af verðhækkun nýrra bíla og við erum fljót að komast upp í 0,7-0,8% áhrif á VNV, sem rekja má beint til hins opinbera.“

Samkvæmt þessu má rekja nær alla hækkun á vísitölu neysluverðs til gjaldskrárhækkana hins opinbera. Vísitalan hækkaði um 0,85 prósent og aðalhagfræðingur Arion banka segir að þar af megi rekja 0,7–0,8 prósent beint til hins opinbera.

Fréttablaðið hefur undir höndum tilkynningar frá ýmsum birgjum til smásala um verðhækkanir sem taka gildi á næstu dögum. Kennir þar margra grasa. Innlend búvara hækkar gjarnan á bilinu 5–6 prósent, en stjórnvöld stýra að miklu leyti verðlagningu hennar, og innfluttar vörur hækka í mörgum tilfellum um meira en 10 prósent, jafnvel allt að 25 prósentum.

Raunum íslenskra neytenda er því ekki lokið í þessari verðbólguöldu.