Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs losaði dauðan hval á Stakksfirði í gær. Hvalurinn hafði flækst í botnföstu tógi, sem talið er líklegt að sé hluti af kræklingaræktunarbúnaði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um hvalinn fyrr í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Hræið var orðið uppblásið og hefði getað valdið hættu fyrir sjófarendur, en það var í miðri leið milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar

Fréttablaðið/Aðsend

Áhöfn Baldurs var kölluð út og beðin um að halda á staðinn til að losa hvalinn og koma honum út fyrir Stakksfjörð. Áhöfninni gekk vel að losa hræið en í ljós kom að á svæðinu er búnaður, tóg og línur sem hvalir, selir og önnur sjávarspendýr geta hæglega fest sig í auk þess sem hætta er á að skip og bátar flæki búnaðinn í skrúfuna.

Búnaðurinn virtist ekki lengur vera í notkun. Þegar áhöfn Baldurs hafði lokið við að losa hvalinn var hann tekinn í tog og haldið með hann út fyrir sjávarfallastrauma og honum sleppt á rek um 15 sjómílum norðvestur af Garðskaga.