Matvælastofnun varar við Sportmix original cat food kattafóðri frá Midwestern pet food í 6,8 kílógramma pokum vegna aflatoxín myglueiturs.

Myglueitur er að finna í þessari ákveðnu tegund frá Sportmix.
Fréttablaðið/Skjáskot
Fyrirtækið Pak ehf. hefur innkallað fóðrið með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs. Fóðrið var tekið úr netsölu í lok desember og haft samband við kaupendur.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Sportmix original cat food
- Þyngd: 6,8 kg (15 lbs)
- Framleiðandi: Midwestern pet foods
- Lotunúmer: Allar dagsetningar fyrir eða 07.09.22/ lotunúmer 07092021L3 05
- Framleiðsluland: Bandaríkin
- Innflytjandi: Pak ehf., Strandgata 32, 220 Hafnarfirði
- Dreifing: https://www.litlagaeludyrabudin.is/netverslun/