Meirihlutinn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins hélt í kosningunum í nótt, þeir halda sex fulltrúum.
Framsóknarflokkurinn bætti við sig fulltrúa en hann fór úr einum í tvo á meðan Sjálfstæðisflokkurinn missti einn og fór úr fimm niður í fjóra.
Sigurvegari kosninganna í Kópavogi var nýja framboðið, Vinir Kópavogs, en þeir unnu mikinn sigur í nótt þegar þeir komu tveimur fulltrúum inn.
Viðreisn, Píratar og Samfylkingin náðu öll einum fulltrúa inn í bæjarstjórnina en hvorki Miðflokkurinn né Vinstri hreyfingin grænt framboð náðu kjöri.
Eftir bæjarstjórnarkosningarnar árið 2018 mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn meirihluta með sex fulltrúa.

Hér má sjá úrslitin í Kópavogi.
Fréttablaðið

Hér má sjá alla ellefu fulltrúa Kópavogs.
Fréttablaðið