Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að sýna almenna skynsemi og fara ekki í námunda við gíginn sem gýs úr og halda hæfilegri og öruggri fjarlægð. Þetta kemur fram í tilkynningu.
„Náttúruöflin eru óútreiknanleg og þarf lítið að gerast til að hraunstreymi breytist eða jafnvel aukist. Við biðjum fólk um að sýna þessum aðvörunum okkar skilning og fara varlega þar sem farið er að dimma og erfitt er að fóta sig í úfnu hrauninu,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir ennfremur að erfiður gangur sé að svæðinu og er það erfitt yfirferðar. „Vinsamlegast virðið þessi aðvörunarorð okkar. Lögregla og björgunarsveitir geta ekki tryggt öryggi fólks á svæðinu.“
Áður hefur Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, sagt í samtali við Fréttablaðið að það komi til greina að loka gossvæðinu ef ekki gengur vel.
Tilkynning lögreglu í heild sinni:
Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að sýna almenna skynsemi og fara ekki í námunda við gíginn sem gýs úr og halda hæfilegri og öruggri fjarlægð. Náttúruöflin eru óútreiknanleg og þarf lítið að gerast til að hraunstreymi breytist eða jafnvel aukist. Við biðjum fólk um að sýna þessum aðvörunum okkar skilning og fara varlega þar sem farið er að dimma og erfitt er að fóta sig í úfnu hrauninu. Erfiður gangur er að svæðinu og er það erfitt yfirferðar.
Vinsamlegast virðið þessi aðvörunarorð okkar.
Lögregla og björgunarsveitir geta ekki tryggt öryggi fólks á svæðinu.