Snæfríður Ingvarsdóttir hefur getið sér gott orð sem leikkona en færri vissu að í henni blundaði söngkona.
„Þetta er eitthvað sem mig hefur alltaf langað að gera. Frá því að ég var lítil hefur þessi draumur alltaf blundað inni í mér. Ætli ég hafi ekki verið að leita að því hvað ég vildi segja með tónlistinni. Rétti tíminn kom einhvern veginn núna.“
Hann er stoð mín og stytta
Snæfríður er í sambúð með tónlistarmanninum Högna Egilssyni og segir hann sína stoð og styttu í tónlistinni.
„Við erum alltaf að spila og syngja eitthvað saman heima. Við spyrjum hvort annað líka mikið um álit og berum verkefnin okkar undir hvort annað. Það er ótrúlega mikil gjöf að geta átt listrænt samtal við makann sinn og ég er mjög þakklát fyrir það. Hann er mín stoð og stytta,“ segir hún.
„Við erum alltaf að spila og syngja eitthvað saman heima. Við spyrjum hvort annað líka mikið um álit og berum verkefnin okkar undir hvort annað. Það er ótrúlega mikil gjöf að geta átt listrænt samtal við makann sinn og ég er mjög þakklát fyrir það. Hann er mín stoð og stytta."
„Ég hef sungið eitthvað inn á lög sem hann er að gera og hann hefur líka aðstoðað mig töluvert við það sem ég er að gera svo það gæti vel verið að við gæfum út eitthvað sameiginlegt í framtíðinni.“
Snæfríður lærði klassískan söng í Söngskólanum í Reykjavík sem unglingur og lagði jafnframt stund á nám í djasssöng við Tónlistarskóla FÍH.
„Ég var líka í kórnum í MH og hef verið að syngja töluvert í Þjóðleikhúsinu sem leikkona,“ segir Snæfríður svo hún er augljóslega ekki að stíga sín fyrstu skref í söngnum þó að hún hafi ekki gefið út lag áður.
En að laginu Lilies sem hefur mikla merkingu í huga Snæfríðar.
„Lagið varð til haustið 2021. Listamaðurinn Siggi Kinski kom með hugmynd að þessu lagi til mín. Það var mjög einfalt til að byrja með og við tókum það upp í litlu stúdíói í Norðurmýrinni með kassagítar.
Við vissum að við vildum gera eitthvað meira við hljóðheiminn í laginu og vorum að leita að meiri átökum. Okkur langaði að skapa svolítið dáleiðandi tilfinningu. Við heyrðum í Marteini (Bngrboy) vini mínum og þróuðum lagið í sameiningu með honum. Albert Finnbogason setti síðan punktinn yfir i-ið, en hann mixaði lagið og bætti við trommum í lokin.“

Endurnýjun sálarinnar
Snæfríður segir að í huga sínum fjalli lagið um nýtt upphaf. Hvítu liljurnar í laginu séu táknmynd fyrir endurnýjun sálarinnar.
„Á þessum tíma þegar við vorum að gera lagið þá stóð faraldurinn yfir. Honum fylgdu stórar spurningar og mörgum var ögrað. Ég stóð á svolitlum tímamótum sjálf og var búin að vera undir álagi persónulega og í starfi,“ segir hún.
„Þegar álagið verður of mikið þá getur maður misst sjónar á því sem skiptir máli og átt það til að setja sjálfan sig í annað sæti. Við þurfum öll að finna sanna tengingu við okkur sjálf.
Það er ekki gefið að heyra skýrt það sem bærist manni í brjósti því í hasar tilverunnar er persónan alltaf að reyna að passa í rétt hlutverk og uppfylla allar kröfur.
Öll þurfum við þessi hlutverk til þess að ná þeim árangri sem við viljum ná en þegar öllu er á botninn hvolft, þá eru verðmætin í lífinu fólgin í að hlúa vel að sjálfum sér, hlusta vel á röddina sem býr innra með þér, sama hversu dauf hún virðist vera.“
„Það er ekki gefið að heyra skýrt það sem bærist manni í brjósti því í hasar tilverunnar er persónan alltaf að reyna að passa í rétt hlutverk og uppfylla allar kröfur."
Endurspeglun á lífinu sjálfu
Snæfríður segist hafa fengið góðan tíma til að skoða sjálfa sig á þessu tímabili og þá fundið sterka þörf til að skapa eitthvað sjálf.
„Mig hefur alltaf langað að gera eitthvað í tónlist og allt í einu var þetta bara einhvern veginn rétti tíminn. Ég upplifi líka mikið frelsi í tónlistinni en hún er einhvern veginn meira abstrakt en leiklistin og aðeins opnari til túlkunar. Allt þjónar þetta samt sama tilgangi sem er að miðla hinu óljósa í manninum, vera einhvers konar endurspeglun á lífinu sjálfu. Við sem listamenn erum bara að varpa ljósi á eitthvert sjónarhorn á lífinu og beina áhorfendum og hlustendum á það.“
Snæfríður undirbýr nú næsta verkefni sem er stuttmynd eftir leikstjórann Rúnar Rúnarsson.
„Ég hlakka mikið til að taka þátt í henni enda er Rúnar frábær leikstjóri og ég hef aldrei unnið með honum áður svo ég er mjög spennt fyrir því.“
Aðspurð hvort vænta megi meira af henni á sviði tónlistarinnar svarar hún ákveðin:
„Já, algjörlega. Ég ætla ekkert að gefa neitt upp en ég vona það svo sannarlega.“ n