Þau Eva Halldóra, sviðshöfundur, Erna Sif, vísindamaður, og Sveppi, leikari, eru mjög ólíkar týpur en eiga þó öll það sameiginlegt að vera miklir bókaunnendur. Fréttablaðið fór á stúfana og spurði Evu, Ernu og Sveppa hvað þau eru búin að vera að lesa í aðdraganda jólanna.

Erna Sif Arnardóttir, vísindamaður
Erna Sif starfar sem dósent í verkfræði og tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og les á hverjum degi.
„Ég er svona frekar mikil alæta, ég les nú meira af skáldsögum en eitthvað líka af non-fiction bókum,“ segir hún.
Erna er vísindamaður og leiðir rannsóknar- og þróunarverkefnið Svefnbyltinguna sem hlaut tveggja og hálfs milljarðs króna styrk frá Evrópusambandinu á síðasta ári, einn hæsta styrk sem veittur hefur verið til vísindarannsókna á Íslandi. Hún les því einkar mikið í tengslum við vinnuna.
„Það er náttúrlega mikið af fræðibókum og vísindagreinum og svoleiðis. En eitt af því sem mér finnst best að gera sem hvíld fyrir hugann til að fá hugarró það er að lesa góðar bækur,“ segir Erna Sif.
Hvaða bækur ertu að lesa um þessar mundir?
„Ég var að klára alveg frábæra bók sem heitir Inngangur að efnafræði eftir Bonnie Garmus. Hún hljómar ekki spennandi, titillinn er mjög undarlegur, maður heldur að þetta sé kennslubók í efnafræði en það gæti ekki verið fjær lagi. Ég er í svona rauðvínsbókaklúbbi og þetta er nýjasta bókin sem varð fyrir valinu þar.“

Erna Sif segir sig alltaf hafa langað að vera í bókaklúbbi og tók sig því til og stofnaði einn slíkan.
„Mig langaði alltaf að vera í bókaklúbbi en það hefur aldrei neinn boðið mér þannig að ég ákvað bara að stofna minn eigin. Ég ákvað að bjóða mömmum stráka sem voru með stráknum mínum í bekk og við enduðum á því að bjóða bara öllum strákamömmunum sem vildu vera með. Við hittumst einu sinni í mánuði og ræðum um einhverja bók sem verður fyrir valinu og svo bara um lífið og tilveruna.“
Hvaða bókum myndirðu mæla með í aðdraganda jólanna?
„Það er bókasería sem heitir Sjö systur, The Seven Sisters, eftir Lucindu Riley sem eru alveg frábærar og gerast úti um allan heim þannig að maður fær að ferðast svolítið með þessum bókum. Rosa áhugaverð saga um fólk og svo fléttast ferðalög inn í. Þannig að ef fólk vantar eitthvað til að hella sér út í um jólin þá mæli ég klárlega með þeim.“
Mig langaði alltaf að vera í bókaklúbbi en það hefur aldrei neinn boðið mér þannig að ég ákvað bara að stofna minn eigin.

Sverrir Þór Sverrisson, leikari
Sverrir Þór, eða Sveppi eins og hann er yfirleitt kallaður, er landsmönnum vel kunnur sem leikari og grínisti. Færri vita þó að hann er upprennandi lestrarhestur, enda meðlimur í tveimur bókaklúbbum.
Lestu mikið?
„Svona í seinni tíð er ég farinn að gera það. Ég er að vinna upp af því ég las ekki neitt frá 0 til 40 ára og fannst ekkert sérstaklega gaman að lesa.“
Spurður um hvað hafi orðið til þess að hann uppgötvaði bækur á miðjum aldri nefnir Sveppi bókaklúbbana en með honum í öðrum þeirra eru ýmsir þekktir aðilar á borð við Gísla Örn Garðarsson og eiginkonu hans Nínu Dögg Filippusdóttur.
„Eins og frægt er orðið þá fór ég í bókaklúbb og svo má eiginlega líka nefna Storytel. Ég fór að mjatla inn hljóðbókum, sem mér finnst geggjað,“ segir Sveppi.
Hann segist gjarnan hlusta á hljóðbækur samhliða öðrum daglegum athöfnum eins og eldamennsku, þvotti og þegar hann er í bílnum.
Hvernig bækur lestu helst?
„Ég er eiginlega bara að reyna að ná í bækur sem ég held að allir séu búnir að lesa. Ég er búinn að lesa Hallgrím Helgason, ég var að lesa Yrsu Sigurðardóttur og Ragnheiði Gestsdóttur. Ég er bara búinn að hlusta á og lesa bækur eftir íslenska höfunda, af því ef ég hitti höfundinn þá finnst mér svo töff að geta sagst hafa lesið bókina hans. Mér finnst ég verða svo mikill spjátrungur,“ segir Sveppi og hlær.

Fólk býst kannski ekki við því að þú sért mikill lestrarhestur?
„Nei, það er alveg rétt og ég er það ekki, ég er svolítið bara að feika þetta. Ég er bara að reyna að verða betri manneskja með því að lesa bækur. Í grunninn finnst mér leiðinlegt að lesa, ef við erum alveg strangheiðarlegir, en það er svo gaman að klára bók og lesa nýjar sögur.“
Sveppi bætir því við að hann sé enn á þeim stað að hann kíki alltaf á hvað hver bók er margar blaðsíður áður en hann byrjar á henni. „Ef hún er mjög þykk þá fæ ég smá kvíða.“
Hvaða bókum myndirðu mæla með?
„Ég las bók sem heitir Farangur eftir Ragnheiði Gestsdóttur sem mér fannst geggjuð. Svo las ég bókina Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur, hún er geggjuð og mjög áhugaverð.“
Ég er bara að reyna að verða betri manneskja með því að lesa bækur. Í grunninn finnst mér leiðinlegt að lesa, ef við erum alveg strangheiðarlegir, en það er svo gaman að klára bók og lesa nýjar sögur.

Eva Halldóra Guðmundsdóttir, sviðshöfundur
Eva Halldóra starfar hjá viðburðateymi Reykjavíkurborgar og les mikið en hún er einkar virk á bókasíðunni Goodreads.
„Ég var að klára Sápufuglinn eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur. Hún er mjög skemmtileg og áhugaverð. Mér fannst hún koma ótrúlega vel til skila þankagangi og hugarfari persónunnar. Ég sá söguna svo ljóslifandi fyrir mér eins og út frá mínu eigin sjónarhorni sem mér fannst skemmtilegt. Svo var ég að byrja á bók sem heitir Before the Coffee Gets Cold eftir Toshikazu Kawaguchi sem byrjar mjög skemmtilega,“ segir Eva Halldóra.
Um er að ræða hálfgerða vísindaskáldsögu um tímaflakk eftir japanskan rithöfund.
„Þetta er um fólk sem getur flakkað um í tíma á kaffihúsi við tiltekið borð á kaffihúsinu. Ég er ekki komin langt inn í söguna en þetta byrjar mjög spennandi og er skemmtilega skrifað. Ég hef ekki lesið mikið af bókum í þessum stíl. Ég er líka búin að vera að taka mig á í ár að lesa meira af höfundum sem eru ekki bara evrópskir eða bandarískir, til dæmis höfunda frá Afríku eða Asíu, til að víkka sjóndeildarhringinn.“
Eva Halldóra bætir því þó við að hún sé einnig búin að vera í mikilli nostalgíu að endurlesa bækur Guðrúnar frá Lundi en hún vinnur um þessar mundir að útvarpsþáttaröð um þennan ástsæla rithöfund í samstarfi við vinkonu sína Viktoríu Blöndal.
Lestu mikið að staðaldri?
„Ég tek þetta í törnum. Ég er alltaf með svona sjö bækur í einu. Ég er kannski með tvær í gangi á Storytel og svo er ég með svona minnst þrjár á náttborðinu,“ segir Eva og hlær.

Hvað ertu spennt að lesa næst?
„Það er margt. Ljóðabókin Varurð eftir Draumeyju Aradóttur, Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur og svo Saknaðarilmur eftir Elísabetu Jökulsdóttur, ég er mjög spennt að lesa hana. Ég er einhvern veginn í fyrsta skipti núna að uppgötva Elísabetu, hún er algjörlega höfundur fyrir mig.“
Eva er í bókaklúbbi með vinkonum sínum og næsta bók sem þær ætla að taka fyrir er leikritið Ókyrrð eftir Brynju Hjálmsdóttur.
„Ég verð líka að nefna að ég var að lesa bókina hennar Viktoríu Blöndal, Aldrei of seint að gefast upp, og hún er snilld. Þetta hljómar eins og ég sé að auglýsa vinkonu mína en ég er ekki að því, mér finnst hún bara dásamleg,“ segir Eva og bætir því við að hún hafi lesið bókina upphátt fyrir manninn sinn Vigfús.
Ég er alltaf með svona sjö bækur í einu. Ég er kannski með tvær í gangi á Storytel og svo er ég með svona minnst þrjár á náttborðinu.