Dómnefnd Hýryrða 2020 hefur lokið störfum sínum og mælir með nýyrðunum kvár, stálp, mágkvár og svilkvár. Ekki fannst kynhlutlaust orð fyrir ekkill eða ekkja en segir í tilkynningu að nefndin vonist til þess að hugmyndir vakni um slík orð hjá almenningi.

Í umfjöllun kemur fram nánari skýring á orðunum sem eru lögð til. Þar segir að kvár geti verið kynhlutlaust orð í stað kona eða karl. Segir að dómnefndin hafi verið sammála um orðið kvár. Það væri heppilegast sem ókyngreint nafnorð um fullvaxta manneskju. Orðið er sagt hafa hlotið nokkra útbreiðslu meðal hinsegin fólks þó það é ekki nema nokkurra mánaða gamalt. Orðasmiður er Hrafnsunna Celeste Ross.

Þá er lagt til orðið stálp fyrir stelpu eða strák eða um manneskju sem ekki er fullvaxta. Í lýsingu kemur fram að orðið sé heppilegt því það tengist lýsingarorðinu stálpaður og hljómi því kunnuglega ásamt því að byrja á st- líkt og bæði strákur og stelpa. Orðasmiður er Inga Auðbjörg Straumland.

„Auk þess hefur orðið -á- líkt og strákur og -lp- líkt og stelpa. Dómnefnd var sammála um að gagnsæi þessa orðs gæti orðið til þess að það næði útbreiðslu auðveldlega,“ segir í lýsingunni.

Þá eru það síðast orðin Mágkvár (sbr. mágkona, mágur) og svilkvár (sbr. svilkona, svili). Fyrir frændsemisorðin sem hefjast á mág- og svil- taldi dómnefnd liggja beint við að skeyta aftan við nafnorðinu kvár, en þessi orðmyndun kom einnig fram í tillögum þátttakenda.

Geti nýst áfram

Segir að þessi aðferð gæti síðan nýst áfram fyrir fleiri orð og þá sérstaklega fyrir orð sem eru samsett og enda á -kona og/eða -maður. Orðasmiður orðanna er Regn Sólmundur Evu.

Í tilkynningu kemur fram að mikilvægt sé að árétt að orðin séu aðeins tillögur og að þær geti breyst með almennri notkun, nái þau útbreiðslu.

„Þegar allt kemur til alls er það svo kynsegin fólk sjálft sem ræður því hvort þessi orð uppfylli þá þörf sem þeim er ætlað að mæta,“ segir að lokum.

Í dómnefnd Hýryrða 2020 sátu Alda Villiljós, Ágústa Þorbergsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Valgerður Hirst Baldurs og Þorbjörg Þorvaldsdóttir.

Tilkynning er aðgengileg hér.