Berglind nýtir hvert tækifæri til að halda boð. „Ég hef alla tíð elskað að bjóða fólki heim og nota hvert tækifæri sem gefst til að gera slíkt. Það er alltaf hægt að finna tækifæri til að hafa gaman og ég reyni alltaf að gera eitthvað skemmtilegt í kringum Eurovision. Stundum er það bara fyrir okkur fjölskylduna en einnig finnst mér gaman að hafa Eurovision-partí,“ segir Berglind.
Íslenski fáninn aðalþemað
Aðspurð segir Berglind að það séu engar fastar hefðir í tengslum við Eurovision-boðin. „Það fer bara eftir því hvernig stuði ég er í hverju sinni og hvort ég er búin að fylgjast mikið með keppninni eða ekki. Ef maður fylgist vel með, og ég tala nú ekki um ef Ísland er með gott lag, þá verður maður óneitanlega spenntari.“ Íslenskinn fáni er aðalþemað hjá Berglindi í þessum boðum. „Ég hef ekki skreytt mikið fyrir þessi boð, nema kannski setja íslenska fánann í matinn og þess háttar. En ég gæti klárlega tekið mig á í þeim efnum þar sem mér finnst ekkert leiðinlegt að skreyta. Í næsta boði verða það klárlega íslensku fánalitirnir eða glimmer og glamúr.“
Margrétta Eurovision-matarboð
Þar sem keppnin er oftast á kvöldmatartíma finnst Berglindi gaman að vera með eitthvað matarkyns í bland við smárétti. „Bland af mat og einhverju sætu og síðan byrja þessi kvöld oft snemma þannig að ekki skemmir fyrir að hafa ostabakka síðar um kvöldið til að narta í og eitthvað viðeigandi að drekka líkt og léttvín. Ostabakkinn klikkar aldrei og það er eiginlega sama hvað hefur verið í matinn, það eru allir til í osta og gúmmelaði yfir stigagjöfinni,“ segir hún. Berglind gefur lesendum Fréttablaðsins hér upp skothelda matarveislu til að bjóða upp á fyrir Eurovision-keppnina sem fram undan er. „Hér hef ég sett saman sætsterkan kjúklingarétt í aðalrétt og dásamlegar Pavlovur í eftirrétt. Síðan er hér einnig útfærsla af dýrindis ostabakka til að hafa síðar um kvöldið, vorlegur og ljúffengur með undursamlegum bökuðum osti. Það passar einstaklega vel með ostabökkum vorsins að skipta úr rauðvíni í rósavín, hvet ykkur til að prófa.“

Sætsterkur kjúklingurinn er girnilegur og einfaldur réttur sem allir geta gert.
Sætsterkur kjúklingaréttur
fyrir 4
4 stk. kjúklingabringur
100 g Sweet chili sósa
Salt, pipar, hvítlauksduft
Ólífuolía til steikingar
Skerið kjúklinginn í bita og steikið upp úr ólífuolíu. Kryddið eftir smekk og hellið Sweet chili sósunni yfir í lokin, lækkið hitann alveg niður og haldið heitu á meðan annað er undirbúið.
Bakaðar sætar kartöflur
Um 900 g sætar kartöflur
Salt, pipar, hvítlauksduft eftir
smekk
3 msk. ólífuolía
Hitið ofninn í 190°C. Flysjið kartöflurnar og skerið niður í teninga. Veltið upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk. Bakið í um 20 mínútur eða þar til kartöflurnar mýkjast.
Karamellíseraður laukur
3 stk. laukur
50 g púðursykur
20 g smjör
1 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Steikið upp úr smjöri og ólífuolíu þar til laukurinn fer að mýkjast, kryddið til með salti og pipar. Bætið þá sykrinum á pönnuna og leyfið að malla við vægan hita þar til annað er tilbúið.
Chillisósa
200 g Hellmann‘s Light majónes
150 g sýrður rjómi
100 g Sweet chili sósa
2 msk. hunang
Pískið allt saman þar til kekkjalaust og geymið í kæli fram að
notkun.
Wasabi-toppur
Raðið saman kartöflum, kjúklingi og lauki. Setjið vel af Sweet chili
sósu yfir allt og toppið með söxuðum wasabi-hnetum.

Guðdómlegar Pavlovurnar toppaðar með bláberjum og karamellusósu, syndsamlega ljúffengur eftirréttur.
Bláberja Pavlovur með fílakaramellukremi
8-10 stykki
3 eggjahvítur
200 g púðursykur
1 tsk. Hvítvínsedik
Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær fara aðeins að freyða. Bætið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli. Þegar blandan er orðin stífþeytt má bæta edikinu saman við og hræra stutta stund til viðbótar. Sprautið marens úr zip-lock poka eða notið tvær matskeiðar til að skipta niður í 8-10 Pavlovur. Takið síðan bakhlið á teskeið og mótið nokkurs konar holu í miðjunni til þess að betra sé að sprauta rjómanum ofan í eftir bakstur. Bakið í 25 mínútur og leyfið að kólna niður með ofninum. Fyllið með rjóma, setjið fílakaramellusósu yfir og skreytið með bláberjum og söxuðu Toblerone.
Fílakaramellusósa
100 g Fílakaramellur (10 stk.)
70 ml rjómi
Bræðið saman þar til slétt sósa hefur myndast. Leyfið sósunni að kólna aðeins niður og ná stofuhita áður en þið setjið yfir rjómann.
Fylling og skreyting
500 ml þeyttur rjómi
Um 300 g Driscolls bláber
70 g saxað Toblerone
Sprautið vel af rjóma ofan á hverja Pavlovu. Setjið fílakaramellusósu
yfir rjómann og næst saxað Toblerone og bláber. Geymið í kæli fram
að notkun.

Ostabakkinn slær ávallt í gegn og gestirnir eiga eftir að missa sig yfir þessum kræsingum.
Evrovision-ostabakkinn 2022
1 x brie-ostur
200 g jarðarber (skorin í teninga)
1 msk. púðursykur
1 msk. balsamik glaze
2 msk. hunang
1 lúka saxaðar kasjúhnetur
Nokkur myntulauf (söxuð)
Hitið ofninn í 180°C og setjið ostinn í eldfast mót. Bakið hann í um 10 mínútur og útbúið jarðarberjatoppinn á meðan. Hitið saman púðursykur, balsamik glaze og hunang þar til sykurinn er bráðinn. Takið af hellunni og hrærið jarðarberjunum varlega saman við. Hellið yfir ostinn þegar hann kemur úr ofninum og toppið með söxuðum kasjúhnetum og vel af myntu.
Annað á ostabakka
Salamirós (ég notaði ítalska
salami með kryddkanti, um 10
sneiðar)
Grissini-stangir vafðar í hráskinku
Chili-sulta
Grettir ostur
Möndlur
Döðlur
Súkkulaðihjúpaðar hnetur og
ávextir
Jarðarber
Ostateningar (Gouda sterkur)
Ritz kex/annað kex