Körfuboltastelpur í KR hafa hvorki fengið bætur, né heyrt aftur frá Sjálfstæðisflokknum þrátt fyrir loforð flokksins um að greiða þeim fyrir tap í veitingasölu á körfuboltamóti yngri flokka fyrr í mánuðinum.
Um fjáröflun fyrir stelpurnar var að ræða vegna æfingaferðar til Bandaríkjanna í sumar. Það spillti hins vegar fyrir veitingasölunni að Sjálfstæðisflokkurinn mætti á svæðið og grillaði frelsisborgara fyrir áhorfendur. Flokkurinn lofaði í kjölfarið að tjón stelpnanna vegna þessa yrði bætt.
„Við erum núna að hlaupa sveitt út um allan bæ að reyna að fjárafla þessa ferð,“ segir Steingrímur Óli Einarsson, meðlimur í foreldrafélagi körfuboltastelpnanna.
Steingrímur segist ekki hafa náð sambandi við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins eftir að loforð um bætur var gefið en það hafi gerst á bílaplaninun við KR heimilið eftir að frelsisborgarabíllinn hafi mætt á staðinn. „Það var bara eftir þetta samtal á bílaplaninu,“ segir hann.
Ákveðið hafi verið að Sandra Hlíf Ocares, sem skipaði 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni, yrði tengiliður flokksins við foreldrafélagið. Foreldrafélagið hefur, að sögn Steingríms, ekki heyrt í henni síðan flokkurinn grillaði hamborgarana.
„Það var sendur tölvupóstur á hana tólfta þessa mánaðar og honum var ekki svarað, ekki einu sinni staðfesting á móttöku,“ segir Steingrímur og bætir við að hún hafi einnig hunsað skilaboð á Facebook.
Sandra kannast ekki við að hafa fengið fyrirspurn

„Ég hef ekki fengið neina fyrirspurn. Við vorum að klára kosningar og þetta er eitt af málunum sem við þurfum að ganga frá," segi Sandra í samtali við Fréttablaðið. Hún segir Sjálfstæðisflokkinn hafa langan lista af málum sem þau hafa þurft að klára eftir kosningarnar og þetta sé eitt af þeim.
Segir tapið hlaupa á tugum þúsunda
Stelpurnar eru að fara í æfingaferð til Fíladelfíu í Bandaríkjunum í sumar og veitingasalan við KR heimilið var hluti fjáröflunar fyrir þá ferð. Steingrímur segir verulega muna um það fé sem fór forgörðum umræddan dag. Aðspurður segir hann að um tugi þúsunda sé að ræða.
Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, staðfesti við Fréttablaðið fyrr í þessum mánuði að hann hafi leyft Sjálfstæðisflokknum að mæta. Steingrímur segir framkvæmdastjórnina ekki hafa upplýst foreldrafélagið um það. „Við sjáum bílinn bara rúlla inn á plan þegar það er að detta í hádegissölu hjá okkur,“ segir hann.
„Þetta virðist vera bara sú hryggðarmynd stjórnmálamanna að skreyta sig með skrautfjöðrum í kosningabaráttu sem eru síðan allar foknar út í veður og vind að kosningum loknum“, segir Steingrímur.