Á sýningunni verða fjórhjóladrifsbílar allt frá Yaris Cross og Corolla Cross en einnig stærri sportjepparnir, RAV4 og Highlander og svo að sjálfsögðu foringjar ferðabílanna og kóngarnir meðal fjallajeppanna, Hilux og Land Cruiser. Þá er ótalinn rafmagnsbíllinn bZ4X sem gefur jeppunum lítið eftir í torfæruhæfileikum enda fáanlegur með hinu magnaða X-mode drifi.
Á sýningunni verður úrval breyttra jeppa frá Arctic Trucks, útilegubúnaður á bíla frá iKamper, kerrur og annar ferðabúnaður frá Bílanaust og fjórhjól og önnur tæki frá Ellingsen.