Ingibjörg H. Sverrisdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB), mun gefa kost á sér í 4. til 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar en Ingibjörg tilkynnti um málið í morgun.
Hún vísar til þess að formenn stærstu félaga eldri borgara hafi síðastliðinn febrúar sent frá sér áskorun til allra flokka sem eru með sæti á Alþingi um að tryggja eldra fólki sæti á framboðslistum þeirra þar sem einstaklingar 60 ára og eldri verða 75 þúsund hér á landi á árinu, þar af 45 þúsund 67 ára og eldri.
„Þessi hópur þarf rödd í samfélaginu. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér enda brenn ég fyrir hagsmunum eldri borgara,“ segir Ingibjörg. „Málefni og kjör eldra fólks eiga hug minn allan og ég mun ekki láta mitt eftir liggja í baráttunni fram undan fyrir bættum lífsgæðum eldra fólks.”
Starfaði í ferðageiranum
Ingibjörg er fædd árið 1947 og vann yfirburðar sigur á aðalfundi FEB sem haldinn var á dögunum en hún tók við formennskunni af Ellerti B. Schram sem sat áður á Alþingi, bæði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna
Hún ólst upp í Reykjavík og Vestmannaeyjum en hún hefur starfað í ferðageiranum bæði erlendis og hérlendis. Hún starfaði síðast hjá Air Atlanta áður en hún fór á eftirlaun.
Ingibjörg stundaði tungumálanám í Þýskalandi og Spáni á yngri árum og á fullorðinsárum við Menntaskólann í Hamrahlíð og síðar við Háskóla Íslands í ferðamálafræðum. Hún hefur setið ótal ráðstefnur og endurmenntunarnámskeið í ýmsum greinum í tengslum við störf sín hverju sinni. Þá hefur Ingibjörg sinnt kennslu í þremur ferðamálaskólum hérlendis og kennt verðandi ferðaráðgjöfum.