Mikill fjöldi fólks er samankominn á Austurvelli við Alþingishúsið í dag til þess að mótmæla ósiðlegu framferði þingmanna Miðflokksins og fyrrverandi þingmanna Flokk fólksins á drykkjusamsæti þeirra á Klaustur bar í síðustu viku og krefjast þess að þau segi af sér.
Austurvöllur var fullur af fólki og á Facebook viðburði mótmælanna höfðu rúmlega 3400 manns látið vita af komu sinni á meðan rúmlega 8100 manns höfðu áhuga á mótmælunum.
Segir á viðburðinum að boðað hafi verið til mótmælanna „í tilefni af þeim yfirgengilegu fordómum og mannfyrirlitningu sem hópur þingmanna hafi frammi á fundi sínum.“
Níu ræðumenn munu kveða sér hljóðs á viðburðinum og eru þar á meðal Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi, Unnsteinn Jóhannsson, varaformaður Samtakanna 78 og Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir, drusla.
Líkt og Fréttablaðið hefur greint ítarlega frá í dag ætla þeir Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson sér að sitja áfram sem óháðir þingmenn og hefur Karl Gauti meðal annars neitað að hafa haft uppi ljót orð um Eygló Harðardóttur, fyrrverandi ráðherra. Þá hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lýst því yfir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki stöðvað fundinn í bréfi þar sem tilkynnt var að Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason væru farnir í leyfi.
Sjá einnig: Gerði mistök en segir að brottreksturinn sé það líka
Í ræðu sinni á fundinum segir Kolbrún Birna meðal annars að mikilvægt sé að Íslendingar setji sér skýr mörk um það samfélag sem þau vilji búa í. Samræður þingmannanna séu hluti af nauðgunarmenningu.
„Ekki nóg með það að þessir kjörnu fulltrúar löggjafarvaldsins hafi svívirt konur, bæði samstarfskonur og aðrar, konur með fötlun, samkynhneigða og menn sem falla ekki inn í staðlaðar hugmyndir þeirra um karlmennsku, heldur hæddust þeir einnig að #me too byltingunni.
Þetta hér er ban-eitruð karlmennska í allri sinni dýrð og allt er þetta partur af nauðgunarmenningu.“
Að lokum segir Kolbrún að þingmennirnir séu hluti af vandamálinu og eigi því að segja af sér.
Ræða Kolbrúnar í heild sinni:
Ég heiti Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann og ég er drusla.
Sú háttsemi og það umtal sem er tilefni þess að við erum komin hingað saman til að mótmæla í dag, er stútfullt af hatri og vanvirðingu við nánast alla samfélagshópa, að undanskildum valdamiklum karlmönnum.
Þær konur sem teknar voru fyrir voru ýmist dæmdar fyrir útlit sitt, rakkaðar niður fyrir að standa á sínu eða druslu-skammaðar. Það að fólk í valdastöðu meti starfshæfni kvenna út frá útliti þeirra er gjörsamlega galið og í andstöðu við allt það sem við viljum trúa um feminísku paradísina sem við teljum okkur lifa í árið 2018.
Ekki nóg með það að þessir kjörnu fulltrúar löggjafarvaldsins hafi svívirt konur, bæði samstarfskonur og aðrar, konur með fötlun, samkynhneigða og menn sem falla ekki inn í staðlaðar hugmyndir þeirra um karlmennsku, heldur hæddust þeir einnig að #me too byltingunni.
Þetta hér er ban-eitruð karlmennska í allri sinni dýrð og allt er þetta partur af nauðgunarmenningu.
Ég get ekki komið því almennilega í orð hversu alvarlegt það er, þegar að fólk í þessari valdastöðu notar frásagnir þolenda um kynferðisofbeldi, sem brandara.
Nú hafa þeir dregið ásakanir á hendur ónefndrar þingkonu til baka, en það breytir því ekki að hugsunarhátturinn að baki þessum skoðunum er enn til staðar.
Það að grínast með svona alvarleg mál gerir það að verkum að þeim tekst að gera lítið úr öllum þeim þolendum sem stigið hafa fram og sagt sína sögu. Ekki nóg með það heldur tekst þeim líka að gera lítið úr alvarleika kynferðisbrota. Fólk sem tekur kynferðisbrotum ekki alvarlega á ekki heima í valdastöðu og hvað þá inni á Alþingi, sem hefur ákvörðunarvald þegar kemur að lögum um þennan málaflokk.
Nú halda sumir því fram, bæði þeir sem orðin eiga og stuðningsmenn þeirra, að þessi orð sem féllu þetta umrædda kvöld hafi einungis verið “meinlaust drykkjuraus”. Sú afsökun hefur lítið vægi, því orð þeirra bera merki um djúpa fyrirlitningu sem greinilega er undirliggjandi.
Nú þekki ég þessa einstaklinga ekki persónulega og ætla því ekki að tjá mig um það hvernig manneskjur þau eru. En hvernig eigum við að geta treyst því að fólk sem getur ekki haft stjórn á sjálfu sér og því sem það segir, geti stjórnað landinu.
Það er gjörsamlega ólíðandi, að þetta fólk sitji hér enn við völd. Fólk, sem hefur það ekki einungis í sér að hugsa þessa hluti til að byrja með, heldur tjáir sig um þá með þessum hætti og þá einnig við aðra aðila í samskonar valdastöðum.
Það segir sig sjálft, að þingmenn sem líta niður á alla þessa samfélagshópa, bera ekki hag allrar þjóðarinnar fyrir brjósti við ákvarðanatöku um lög sem varðar okkur öll.
Við þurfum að átta okkur á þeim skilaboðum sem við sendum kjörnum fulltrúum ef við leyfum þeim að sitja áfram eftir þessa hegðun. Skilaboðin eru einfaldlega þau að þeir geti komist upp með nánast allt án þess að þurfa að axla ábyrgð á því.
Við þurfum að setja skýr mörk um það hvernig samfélagi við viljum búa í og þetta er tækifæri fyrir okkur til að sýna það að við líðum ekki að fólk, sem er stútfullt af mannfyrirlitningu, sitji hér við völd.
Hættum að afskrifa kvenfyrirlitningu og kvenhatur sem bara einhverjar "skoðanir" sem mönnum er frjálst að hafa út af fyrir sig.
Hættum að leyfa mönnum að titla sig "femínista" eða "he for she" þegar þeir hegða sér í andstöðu við það.
Svona mál verða að hafa afleiðingar ef jafnrétti kynjanna á einhvern tímann að nást.
Þið sem létuð þessi fjandsamlegu ummæli falla á Klaustri þetta umrædda kvöld.
Ég krefst þess að þið sýnið þá virðingu að segja af ykkur og víkið úr sætum.
Látið af embættum ykkar, ekki einungis fyrir þjóðina sem treysti ykkur fyrir þessum embættum til að byrja með, heldur einnig fyrir allt samstarfsfólk ykkar sem þið svívirtuð.
Það er ekki nóg að biðjast afsökunar þegar það kemst upp um ykkur.
Þið eruð hluti af vandamálinu - takið ábyrgð og segið af ykkur.



