Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, varabæjarfulltrúi og varaþingmaður Suðurkjördæmis, leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ fyrir kosningarnar í maí. Fram kemur í tilkynningu að listi flokksins hafi verið samþykktur á félagsfundi 10. Mars.
„Tækifærin eru allt um kring og það er okkar sem hér búum að grípa þau. Eitt mikilvægasta hlutverk bæjarfulltrúa er að valdefla íbúa til góðra verka, styðja við bakið á góðum hugmyndum og ryðja hindrunum burt. Frambjóðendur Framsóknar munu líkt og síðastliðin fjögur ár halda áfram að fjárfesta í fólki og vera hreyfiafl framfara í samfélaginu,“ sagði Halldóra Fríða á fundinum.
Listann skipa:
- Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri í íslensku sem öðru máli og varaþingmaður
- Bjarni Páll Tryggvason, forstöðumaður hjá Isavia
- Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar
- Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari
- Trausti Arngrímsson, viðskiptafræðingur
- Sighvatur Jónsson, tölvunarfræðingur og fjölmiðlamaður
- Aneta Zdzislawa Grabowska, einkaþjálfari, zumba kennari og snyrtifræðingur.
- Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri, bílasali
- Friðþjófur Helgi Karlsson, skólastjóri
- Bjarney Rut Jensdóttir, lögfræðingur
- Birna Ósk Óskarsdóttir, grunnskólakennari
- Unnur Ýr Kristinsdóttir, verkefnastjóri hjá KFUM og K á Íslandi
- Gunnar Jón Ólafsson, verkefnastjóri í eldvarnareftirliti
- Andri Fannar Freysson, tölvunarfræðingur
- Birna Þórðardóttir, viðurkenndur bókari hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
- Halldór Ármannsson, trillukall
- Karítas Lára Rafnkelsdóttir, ráðgjafi hjá Björginni
- Eva Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandair og MBA nemi
- Ingibjörg Linda Jones, hjúkrunarnemi og starfsmaður Heilbrigðisstofnunnar Suðurnesja
20. Sævar Jóhannsson, húsasmíðameistari
21. Kristinn Þór Jakobsson, viðskiptafræðingur og innkaupastjóri
22. Jóhann Friðrik Friðriksson, Alþingismaður