Einar Þorsteinsson, fyrrum fréttamaður og stjórnmálafræðingur, leiðir lista Framsóknar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí. Einar tilkynnti um framboð sitt fyrir viku i í Vikunni hjá Gísla Marteini.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, skipar annað sætið. Listinn var samþykktur á auka kjördæmaþingi á Hilton Reykjavík Nordica í gærkvöldi.
Í þriðja sæti listans er Magnea Gná Jóhannsdóttir, laganemi og í því fjórða er er Aðalsteinn Haukur Sverrisson, framkvæmdastjóri og varaþingmaður. Í fimmta sæti er Þorvaldur Daníelsson, stofnandi Hjólakrafts og MBA.
„Ég er mjög þakklátur að fá að leiða lista þessa öfluga framsóknarfólks sem vill láta gott af sér leiða fyrir Reykvíkinga. Listinn er skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu af málefnum borgarinnar. Ég finn mikinn meðbyr með Framsókn og síðustu daga hafa fjölmargir gefið kost á sér til þess taka þátt í starfinu. Það er greinilegt að borgarbúar vilja geta kosið ferskan og öfgalausan valkost á miðju stjórnmálanna sem vantað hefur undanfarið kjörtímabil. Framsókn er flokkur fjölskyldunnar og í borgarmálunum er verk að vinna“ segir Einar Þorsteinsson, nýr oddviti Framsóknar í Reykjavík, í tilkynningu frá flokknum.
Á listanum eru 24 karlar og 22 konur. Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og ráðherra, er í heiðurssæti listans. Framsóknarflokkurinn átti ekki neinn borgarfulltrúa í borgarstjórn á þessu kjörtímabili en á kjörtímabilinu á undan hættu borgarfulltrúarnir Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir. Flokkurinn bauð fram árið 2014 sem Framsóknarflokkur og flugvallarvinir. Þau buðu svo fram sem Framsóknarflokkurinn árið 2018 en hlutu aðeins 3,2 prósent atkvæða og fengu því engan fulltrúa.
Listi Framsóknar í Reykjavík:
- Einar Þorsteinsson, f.v. fréttamaður og stjórnmálafræðingur
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og rithöfundur
- Magnea Gná Jóhannsdóttir, M.A. nemi í lögfræði og formaður Ung Framsókn í Reykjavík
- Aðalsteinn Haukur Sverrisson, framkvæmdastjóri og varaþingmaður
- Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdastjóri Hjólakrafts og MBA
- Unnur Þöll Benediktsdóttir, öldrunarfræðinemi og frumkvöðull
- Gísli S. Brynjólfsson, markaðsstjóri
- Ásta Björg Björgvinsdóttir, forstöðumaður í félagsmiðstöð og tónlistarkona
- Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur
- Lárus Helgi Ólafsson, kennari og handboltamaður
- Ásrún Kristjánsdóttir, myndlistarkona og hönnuður
- Tetiana Medko, leikskólakennari
- Fanný Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Jón Eggert Víðisson, teymisstjóri hjá Reykjavíkurborg
- Berglind Bragadóttir, kynningarstjóri
- Jóhann Skagfjörð Magnússon, skólastjóri
- Inga Þyrí Kjartansdóttir, f.v. framkvæmdastjóri
- Griselia Gíslason, matráður
- Sveinn Rúnar Einarsson, veitingamaður
20. Gísli Jónatansson, f.v. kaupfélagsstjóri
21. Jón Ingi Gíslason, grunnskólakennari
22. Þórdís Jóna Jakobsdóttir, fíkniráðgjafi og markþjálfi hjá Hlaðgerðarkoti
23. Ágúst Guðjónsson, laganemi
24. Birgitta Birgisdóttir, háskólanemi
25. Guðjón Þór Jósefsson, laganemi
26. Helena Ólafsdóttir, knattspyrnuþjálfari og þáttastjórnandi
27. Hinrik Bergs, eðlisfræðingur
28. Andriy Lifanov, vélvirki
29. Björn Ívar Björnsson, hagfræðingur
30. Gerður Hauksdóttir, skrifstofustjóri
31. Bragi Ingólfsson, efnafræðingur
32. Dagbjört S. Höskuldsdóttir, f.v. kaupmaður
33. Ingvar Andri Magnússon, laganemi og fyrrum ólympíufari ungmenna í golfi
34. Sandra Óskarsdóttir, grunnskólakennari
35. Stefán Þór Björnsson, viðskiptafræðingur
36. Þórdís Arna Bjarkarsdóttir, læknanemi
37. Ívar Orri Aronsson, stjórnmálafræðingur
38. Jóhanna Gunnarsdóttir, sjúkraliði
39. Þorgeir Ástvaldsson, fjölmiðlamaður
40. Halldór Bachman, kynningarstjóri
41. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, verkfræðingur
42. Lárus Sigurður Lárusson, lögmaður
43. Níels Árni Lund, f.v. skrifstofustjóri
44. Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri
45. Jóna Björg Sætran, f.v. Varaborgarfulltrúi, M.ed. og PCC markþjálfi
46. Sigrún Magnúsdóttir, f.v. ráðherra og borgarfulltrúi