Alls munu 24.900 manns fá eingreiðslu í dag þegar Tryggingastofnun afgreiðir eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn miðvikudag og kemur fram í tilkynningu frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að allt kapp hafi verið lagt á að greiðslan berist svo fljótt sem auðið er.
Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2022 og er hún 60.300 krónur Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu.
Eingreiðslan telst ekki til tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annarra greiðslna.