Fyrsta neyslurýmið í Reykjavík tekur til starfa á morgun. Velferðarráð samþykkti í dag samning velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Rauða krossins um rekstur neyslurýmis. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en reksturinn er rekinn á starfsleyfi frá embætti landlæknis en um er að ræða fyrsta starfsleyfið sem gefið er út vegna slíks reksturs hér á landi.
Neyslurýmið verður til bráðabirgða í sérútbúnum bíl og tekur til starfa á morgun, fimmtudag. Í rýminu munu einstaklingar, 18 ára og eldri, geta neytt ávana- og fíkniefna í æð undir eftirliti starfsfólks. Áætlaður rekstrarkostnaður neyslurýmisins er um 50 milljónir króna á ári en hann greiðist af Sjúkratryggingum Íslands. Staðsetning bílsins er ákveðin með tilliti til þarfa notenda í huga og staðsett miðsvæðis í Reykjavík, í góðu samstarfi við viðbragðsaðila. Leyfið vegna rekstursins er gefið út til eins árs.
„Það er fagnaðarefni að loksins verði öruggt neyslurými að veruleika í Reykjavík fyrir þá einstaklinga sem neyta ávana- og fíkniefna í æð. Við höfum lagt mikla áherslu á að byggja upp skaðaminnkandi þjónustu á þessu kjörtímabili með það að markmiði að minnka skaðann sem notkun vímuefna hefur fyrir þann sem notar þau en einnig fjölskyldu, nágranna og samfélagið allt. Hér er vonandi bara tekið fyrsta skrefið í samvinnu ríkis og borgar um að samþætta heilbrigðis og félagsþjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, í tilkynningunni.
Byggir á hugmyndafræði skaðaminnkunar
Í tilkynningu frá borginni kemur einnig fram að tilkoma rýmisins er talin mikilvægt skref í þjónustu við fólk sem er með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Rýmið byggir á hugmyndafræði um skaðaminnkun en samkvæmt þeirri stefnu er markmið um að draga úr heilsufarslegum, félagslegum og efnahagslegum afleiðingum notkunar vímuefna, án þess endilega að draga úr notkun þeirra.
„Þetta er merkilegur áfangi í sögu skaðaminnkunar á Íslandi og við hjá Rauða krossinum erum stolt af því brautryðjendastarfi sem við höfum unnið síðastliðin ár þannig að fólki með vímuefnavanda sé mætt á jafningagrundvelli og fái þá aðstoð sem þau þurfa. Við erum þakklát fyrir að fá að koma að þessu verkefni með Reykjavíkurborg og að geta aðstoðað fólk af mannúð,“ segir Marín Þórsdóttir, deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins.
Grundvöllur þess að hægt er að reka slíkt neyslurými á Íslandi eru lagabreytingar sem gerðar voru í júní árið 2020 en þær fólu í sér heimild til sveitarfélaga um að koma á fót slíku rými. Eftir samþykkt lagabreytinganna hófust viðræður velferðarsviðs við Sjúkratryggingar Íslands og í kjölfar þess við Rauða krossinn um reksturinn, að fengnu starfsleyfi frá Embætti landlæknis.