Framboðslisti Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á félagsfundi í gær. Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar leiðir listann, Guðný Birna Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi og hjúkrunarstjóri skipar annað sæti, Sverrir Bergmann Magnússon, söngvari og stærðfræðikennari, þriðja sætið og Sigurrós Antonsdóttir, hársnyrtimeistari og háskólanemi, það fjórða.

Allur listinn sem er í framboði.
Mynd/Aðsend
S-listi Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ 2022
- Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi og ráðgjafi
- Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarstjóri
- Sverrir Bergmann Magnússon, söngvari og stærðfræðikennari
- Sigurrós Antonsdóttir, hársnyrtimeistari og háskólanemi
- Hjörtur Magnús Guðbjartsson, kerfisstjóri
- Aðalheiður Hilmarsdóttir, viðskiptafræðingur
- Sigurjón Gauti Friðriksson, meistaranemi í lögfræði
- Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri og fótaaðgerðafræðingur
- Sindri Kristinn Ólafsson, íþróttafræðingur og knattspyrnumaður
- Eydís Hentze Pétursdóttir, ráðgjafi
- Styrmir Gauti Fjeldsted, bæjarfulltrúi og B.Sc í rekstrarverkfræði
- Marta Sigurðardóttir, viðskiptastjóri
- Magnús Einþór Áskelsson, þroskaþjálfi
- Írís Ósk Ólafsdóttir, stafrænn lausnastjóri
- Jón Helgason, öryggisvörður
- Elfa Hrund Guttormsdóttir, teymisstjóri Geðheilsuteymis HSS
- Borgar Lúðvík Jónsson, skipasmiður
- Katrín Freyja Ólafsdóttir, nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Svava Ósk Svansdóttir, nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
20. Sveindís Valdimarsdóttir, verkefnastjóri og kennari
21. Guðjón Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
22. Jón Ólafur Jónsson, fyrrverandi bankamaður