Kortavelta Íslendinga jókst um 24 prósent milli ára miðað við fast gengi og fast verðlag, að því er fram kemur í nýrri samantekt hagdeildar Landsbanka Íslands. Alls nam velta tengd verslun og þjónustu innanlands tæpum 79 milljörðum króna og jókst um tæp fjórtán prósent á milli ára.

Kortavelta Íslendinga erlendis nam á sama tíma 18 milljörðum króna og jókst um 106 prósent milli ára.

Sérfræðingar bankans segjast sjá breytingar í innlendri neyslu þar sem kaup á þjónustu vegi nú hlutfallslega meira í aukningunni, enda ýmis þjónusta, sem hafi verið ófáanleg þegar faraldurinn stóð sem hæst, nú orðin aðgengileg að nýju.

Fram kemur í samantekt bankans að kaup Íslendinga á skipulögðum ferðum ferðaskrifstofa hafi tífaldast frá sama tíma í fyrra og kaup á þjónustu menningar-, afþreyingar- og tómstundastarfsemi hafi vaxið um nærri 150 prósent.

Á sama tíma mælist samdráttur í kortaveltu Íslendinga í mörgum verslunum. Mestur er samdrátturinn í áfengisverslunum, þar sem kortavelta dróst saman um 20 prósent að raunvirði milli ára. Í byggingarvöru-, raf- og heimilistækjaverslunum mælist einnig samdráttur en aukningin var mjög mikil í þeim verslunum þegar faraldurinn skall á og mælist kortaveltan enn sterk þó hún dragist nú saman milli ára.