Rétt rúmlega 10 í morgun barst beiðni frá erlendum ferðamanni sem staddur var í Landmannalaugum og hafði fest bíl sinn í á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu sendi bíl á vettvang sem var kominn inn í Landmannalaugar að ferðamanninum kl 12:30. Hann hafði gist í Landmannalaugum síðustu nótt, en aðeins snjóaði þar í nótt og hafði vaxið í ám. Þegar hann hugðist fara til baka festist bíll hans í árkvísl.
Maðurinn var einn á ferð. Björgunarsveitarmenn náðu bílnum á þurrt, en þurftu að skilja hann eftir. Ferðamanninum var svo ekið til byggða. Aðgerðum var lokið 15:30.

Mynd/Landsbjörg