Suðvestan 5 til 10 metrar á sekúndu. Él og hiti kringum frostmark, en lengst af þurrt og heldur svalara austan- og norðaustanlands. Sunnan 8 til 15 í kvöld og hlýnar með slyddu eða rigningu á sunnan- og vestanlands, en snjókoma norðvestan til.
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands aftur séð spáð suðvestanátt og éljum á morgun, en léttskýjað norðaustanlands „Eftir hádegi snýst vindur í vaxandi norðanátt með snjókomu, en að sama skapi birtir um sunnanvert landið. Útlit er fyrir að norðanáttin verði allhvöss eða hvöss og því er hríðarveður líklegt norðan til síðdegis á morgun, einkum á fjallvegum."
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Suðvestan og vestan 13-18 m/s með éljum, en úrkomulítið á Austurlandi. Kólnandi veður, frost 0 til 10 stig seinnipartinn. Gengur í norðan 15-20 með snjókomu norðan til um kvöldið, annars hægari vindur og úrkomuminna.
Á laugardag:
Minnkandi norðanátt og snjókoma um morguninn. Snýst í suðvestan 8-15 m/s með él vestanlands, en léttir til austantil. Frost 0 til 8 stig.
Á sunnudag:
Suðvestlæg átt, 5-13 m/s og él, en bjart með köflum norðaustanlands. Frost 2 til 10 stig. Vaxandi vestanátt vestan til um kvöldið.
Á mánudag:
Norðvestlæg átt, víða dálítil él og kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt með snjókomu um kvöldið.
Á þriðjudag:
Norðanátt með éljum og kólnandi veðri.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir breytilega átt, bjartviðri og frost um allt land.