Séra Davíð Þór Jónsson á að baki ævintýralegri feril en margir prestar. Hann varð landsþekktur grínisti undir lok síðustu aldar í Radíusbræðrum með Steini Ármanni Magnússyni og brá sér einnig í hlutverk ritstjóra, þýðanda og ljóðskálds. Davíð Þór hefur gegnt embætti sóknarprests í Laugarneskirkju frá árinu 2016 og situr hvergi á skoðunum sínum.
„Meginútgangur kirkjunnar og tilgangur er að vera vettvangur fyrir kærleika Guðs að störfum meðal manna,“ segir Davíð Þór. „Hún er beinlínis stofnuð utan um kærleika Guðs. Bæði að lofsyngja hann og þakka en líka að praktísera það sem Jesús boðaði okkur.“
Að hans sögn er grundvallarregla kristinnar trúar hin svokallaða Gullna regla, að það sem þér viljið að aðrir gjöri yður skulið þið og þeim gjöra. „Það hefur verið bent á að Jesús hafi svo sem ekki fundið upp þessa reglu. En það sem hann gerir er að hann breytir henni í verknaðarskyldu. Hún er upphaflega sett fram sem taumhaldsskylda,“ segir Davíð Þór.
„Ekki koma fram við aðra eins og þú vilt ekki að aðrir komi fram við þig. Ekki gera öðrum það sem þú vilt ekki að þér sé gert. Með öðrum orðum að ef þú situr á rassinum og gerir ekki neitt ertu að uppfylla þessa kröfu. En Jesús gengur skrefinu lengra og gerir þetta að verknaðarskyldu. Þú þarft beinlínis að standa upp af rassinum, fara þarna út og gera eitthvað gott.“
Kristni ekki eina leiðin
Davíð Þór fann trúna á fullorðinsárum en hann heldur því þó ekki fram að kristnin sé merkilegri en önnur trúarbrögð. „Ég ætla ekkert að hefja kristindóminn á einhvern stall og segja að hann sé merkilegri en önnur trúarbrögð. Það var ekki þess vegna sem ég tók þá ákvörðun að verða kristinn.“
Hann segist hafa tekið ákvörðunina vegna knýjandi þarfar til að velja einhverja leið fyrir sitt andlega líf. „Ég valdi þessa leið af því að hún lá beint við mér. Með fullri virðingu fyrir íslenskum búddistum þá sá ég ekki ástæðu fyrir mig til að fara til Indlands. Til að finna eitthvað sem hugsanlega er í boði í kirkjunni hinum megin við götuna.“
Hann bætir því við að kristindómur sé hvorki eina leiðin né endilega sú besta. „En ég hef ekkert fyrir mér í því að hún sé eitthvað verri en aðrar leiðir heldur. Hér eru kirkjur á öðru hverju götuhorni. Það er kross í fánanum okkar. Nafnið mitt er úr Biblíunni. Þannig að ég upplifi að rætur mínar séu þar og þess vegna er ég þar. Ekki af einhverju yfirlæti.“
Davíð Þór segir að helsta hlutverk þjóðkirkjunnar sé að hún eigi að þjóna öllum óháð búsetu.
„Það hefur verið misskilningur að Þjóðkirkjan sé þjóðkirkja af því að hún sé ríkisrekin, svona eins og Þjóðleikhúsið eða Þjóðarbókhlaðan. En Þjóðkirkjan er þjóðkirkja af því að hún lítur á það sem sitt hlutverk að þjóna íslensku þjóðinni óháð búsetu. Og er sennilega eina trúfélagið á Íslandi sem hefur burði til þess.“
Allir geta leitað til kirkjunnar
Að sögn Davíðs eiga allir að geta leitað til þjóðkirkjunnar óháð kyni, kynferði, kynhneigð, aldri, fötlun og trúfélagsaðild. Það sé ekki kirkjunnar að fara í manngreinarálit.
„Fólk kemur stundum hingað og afsakar sig: ég er ekki í þjóðkirkjunni. En það er á milli þín og þjóðskrár hvernig þú vilt haga því hvernig þú ert skráður í trúfélag. Ég sendi fólk þá kannski heim með spurningar: Af hverju viltu ekki tilheyra trúfélagi sem þú ert tilbúinn að þiggja þjónustu hjá?“
Davíð segir kirkjuna jafnvel taka á móti fólki af öðrum trúarbrögðum en kristni enda hafi þau verið með starfandi bænahópa fyrir hælisleitendur og flóttafólk. Það geti þó verið aðeins snúnara að veita þeim hópum viðeigandi þjónustu.
„Eðli málsins samkvæmt eigum við erfitt með að sinna trúarþörfum íslamskra hælisleitenda einfaldlega vegna þess að við erum ekki íslamskt trúfélag. En við greiðum götu þeirra ef þeir leita til okkar og veitum þeim alla þá þjónustu sem þeir óska. Ég veit að Félag múslíma á Íslandi hefur verið mjög duglegt að taka á móti þessu fólki og sinna andlegu og trúarlegu þörfum þess.“
Eigum að taka á móti fólki
Davíð Þór telur presta landsins tala einum rómi varðandi skyldu Íslendinga til að taka á móti flóttamönnum. Í því samhengi vísar hann til Matteusarguðspjalls þar sem segir meðal annars: „gestur var ég, og þér hýstuð mig“. Davíð segir þessa þýðingu vera varhugaverða enda standi ekki gestur á frummálinu heldur xenos, sem þýðir útlendingur eða aðkomumaður.
„Hvaða útlendingar voru að þvælast þarna fyrir botni Miðjarðarhafs sem þurftu aðstoð? Það voru ekki túristar. Það var ekki búið að finna upp túrismann á þessum tíma. Þetta var flóttafólk sem var að flýja hungursneyðir eða vopnaskak í heimalandinu.“
Davíð Þór segir nauðsynlegt að taka á móti flóttafólki án nokkurra skilyrða um að það breyti trú sinni eða lífsskoðunum. Skilyrðið sé bara að fólk sé tilbúið að virða samfélagssáttmálann.
„Það getur verið að af því að þetta heitir kirkja þá hiki fólk við að leita aðstoðar ef það hugsar ekki um sig sem kristið. En við hjálpum ekki fólki af því að það er kristið, heldur af því að við erum það.“
Kirkjurnar eru ekki tómar
Nokkuð hefur verið rætt um kirkjur sem standi tómar víða um land og sú hugmynd komið upp að endurnýta mætti þær í húsnæði fyrir flóttafólk. Davíð segir að Laugarneskirkja myndi auðvitað gera slíkt í neyðarástandi en það bryti þó í bága við brunavarnareglur að fylla safnaðarheimilið af sængum og dýnum og breyta því í gististað.
„Mér þætti ágætt að fá lista yfir þessar tómu kirkjur. Laugarneskirkja er svo sannarlega ekki ein af þeim, hér er dagskrá hvern einasta dag. Þeir sem tala mest um þessar tómu kirkjur – ég efast um að þeir hafi rekið nefið inn í kirkju sjálfir, nokkurn tímann. Þetta er bara eitthvað sem þeir eru búnir að ákveða að sé veruleikinn. En við sem erum í kirkjunni, vinnum í henni 40 klukkustunda vinnuviku, vitum að svo er ekki.“
Davíð Þór segir að í neyð sé auðvitað engin spurning hvort sé mikilvægara.
„Þegar lög guðs og lög manna greinir á, þá munu lög guðs ráða. Auðvitað myndum við gera það. Ég held að það sé ekki sú kirkja á Íslandi sem ekki myndi gera það. En við erum ekki komin þangað og ég held að við ættum að hafa manndóm í okkur að bjóða fólki, sem ekki á í nein hús að venda, upp á betri lausnir en þær að þurfa að kúldrast á dýnum í safnaðarheimili.“
Spurður um hvort kirkjan mætti vera pólitískari segir Davíð Þór þjóðkirkjuna hafa mjög eindregna afstöðu í málefnum flóttafólks.
„Kirkjan, þar sem hún horfir á neyðarástand, hefur burði til að bregðast við. Ef hingað kæmu þúsundir Úkraínumanna á flótta veit ég að við myndum leggja allt okkar daglega starf til hliðar og gera allt sem í okkar valdi stendur til að taka á móti þessu fólki. En núna er lítið sem við getum gert annað en að segja: Þú getur ekki verið á móti komu flóttamanna og kallað þig kristna manneskju í sömu setningu.“ n