Átakinu Römpum upp Ísland var formlega hleypt af stokkunum fyrr í dag. Markmiðið með verkefninu er að byggja 1.000 rampa um land allt á næstu fjórum árum.
„Við höfum lengi haldið því fram að Hveragerði sé hliðið inn á Suðurland og því er tilvalið að rampa upp verkefnið hér. Á sama tíma erum við mjög stolt að fá að taka þátt í þessu verðuga verkefni. Aukið aðgengi er öllum í hag. Nú gefst fólki kostur á að sækja þá þjónustu sem það vill án þess að þurfa að hafa áhyggjur af aðgengi. Einnig hjálpar þetta öðrum, svo sem fólki með reiðhjól svo dæmi séu tekin,“ sagði Jakob Jakobsson, eigandi veitingastaðarins Matkráin í Hveragerði í dag, en haldinn var fundur um verkefnið þar í dag.
Römpum upp Ísland er verkefni þar sem miðað er að því að setja upp 1.000 rampa á næstu fjórum árum um land allt. Fram kemur í tilkynningu um málið að stofnaður hafi verið sjóður með aðkomu fjölmargra fyrirtækja og aðila sem munu standa straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu.
Með römpunum er öllum gert kleift að komast á þægilegan hátt inn á veitingastaði og í verslanir þátttakenda á landinu öllu. Verkefnið verður framkvæmt í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvalda.
Til máls á fundinum í Hveragerði í dag tóku Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og verndari verkefnisins, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull verkefnisins og verndari og verndari þess. Friðrik Sigurbjörnsson, forseti bæjarstjórnar í Hveragerði, sá um fundarstjórn.
„Verkefnið Römpum upp Ísland er ekki aðeins merkilegt fyrir það að í því felst stórkostleg breyting í aðgengismálum fatlaðs fólks um allt land, heldur er að sérlega ánægjulegt og virðingarvert að einstaklingur leggi svo mikið af orku sinni og fjármunum til verkefna af þessu tagi. Ég vil sérstaklega þakka Haraldi Þorleifssyni fyrir frumkvæðið að samstarfinu og ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir þá tillögu, sem ég hef staðfest og undirritað og felur í sér 200 milljóna króna stuðning við verkefnið næstu fjögur árin,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, í tilkynningunni.

Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins. Hann segir að allt frá upphafi hafi verið tekið vel í verkefnið og því færi þau nú út kvíarnar.
„Strax frá byrjun verkefnisins í Reykjavík höfum við fundið fyrir miklum áhuga um allt land og því ákváðum við að slá til. Stuðningsaðilar okkar hafa einnig unnið þrekvirki og þetta væri einfaldlega ekki hægt án þeirra,“ sagði Haraldur í tilkynningunni.
Verkefnið Römpum upp Reykjavík, sem snéri að því að byggja 100 rampa í miðbæ Reykjavíkur í fyrra, fékk byr undir báða vængi og var lokið við 101 ramp næstum þremur mánuðum á undan áætlun og á sama tíma undir kostnaðaráætlun. Álíka upphæð og framlag innviðaráðuneytisins mun renna inn í verkefnið frá einkaaðilum og sveitarfélögum.