Viðskiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka iðnaðarins segir að byggingarkostnaður muni hækka vegna boðaðra gjaldskrárhækkana hjá Sorpu sem taka gildi þann 1. janúar næstkomandi.
Þetta kemur fram íMorgunblaðinu í dagen þar segir Lárus M.K Ólafsson hjá SI að Sorpa hafi ákveðið að fara „algjörlega gegn“ því sem áhersla hafi verið lögð á í núverandi ástandi, að ríki og sveitarfélög haldi aftur af sér í hækkunum á gjaldskrá.
Breytingarnar voru kynntar á heimasíðu Sorpu þann 18. nóvember síðastliðinn. Er bent á að í ákveðnum tilvikum nemi hækkun á móttökugjaldi hátt í 300 prósent. Á það við um steinefni frá byggingariðnaðinum og glerumbúðir og glerílát, þar sem kostnaður fyrir hvert innlagt kíló fer úr 1,86 krónum í 6,82 krónur.
Segir Lárus að hækkunin virki ekki mikil en hún geti leit til kostnaðarauka upp á allt að 30 milljónum króna hjá stærri byggingarverktökum á einu ári. Hann segir það gefa augaleið að þetta verði til þess að hækka byggingarkostnað, ekki síst á þéttingarreitum þar sem rýma þurfi til fyrir nýju húsnæði á kostnað eldra húsnæðis.