Skammtímastæði tvöfölduðust í verði á þriðjudaginn á nokkrum stöðum í miðborginni. Á vef Bílastæðasjóðs kemur fram að í Stjörnuporti og Vitatorgi hækki fyrsta klukkustund úr 80 krónum í 150 og næstu klukkustundir hækki úr 50 krónum í 100.
Þetta þýðir að sá sem leggur í átta tíma greiðir 850 fyrir daginn í stað 430 króna áður.
Langtímastæði í bílahúsum hafa einnig hækkað í verði í nýju ári.
* Efri hæð í Bergstöðum og Stjörnuporti hækka úr 7.900 krónur í 8.700 (10,1% hækkun)
* Neðri hæðin á Bergstöðum, Ráðhús og Vesturgata hækkar úr 13.500 krónur í 14.500 krónur (7,4% hækkun).
* Kolaport og Traðarkot hækka úr 8.700 úr 9.900 krónum (13,7% hækkun).
* Vitatorg hækkar úr 6.900 í 7.500 krónur (8,7% hækkun).
Þá hækka skammtímastæði almennt um 20 prósent, úr 200 krónum í 240 fyrir klukkustundina en gjaldið eftir fyrstu klukkustund verður óbreytt í 120 króum. Tímagjaldið í Stjörnuporti og á Vitatorgi hækkar þó tvöfalt, eins og áður greinir.