Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna veðurs síðdegis í dag og á morgun. Búist er við hvössum vindi og vindhviðum og má búast við að færð spillist.
Líkur eru á að töluverð snjókoma fylgi lægðinni yfir landið á sumum stöðum og hefur Vegagerðin varað við því að færð muni spillast.
„Vandinn að þessu sinni er að búast má við að fjöldi ferðamanna fari af stað í fyrramálið í sæmilegu veðri en sitji uppi með að komast ekki heim að kvöldi,“ segir á vef lögreglunnar sem biðlar til starfsfólks í ferðaþjónustu að vera duglegt að upplýsa gesti sína um veðurspá og hvetja þá til að fylgjast vel með eða hafa ferðaplönum í samræmi við veðurspá.