Bæjarins beztu hækkuðu verð á pylsum fyrir tæpri viku. Nú kostar ein pylsa með öllu 600 krónur. Þetta staðfesti Guðrún Björk Kristmundsdóttir, eigandi og framkvæmdarstjóri Bæjarins beztu, í samtali við Fréttablaðið.
Í nóvember 2020 hækkaði verðið á pylsu úr 470 krónum í 500 krónur, og í júlí í fyrra hækkaði verðið í 550 krónur. Á einu og hálfu ári hefur verðið á einni pylsu með öllu því hækkað um 130 kr.
Aðspurð af hverju verðið hafi hækkað svaraði hún hlæjandi. „Þarftu að geta? Verðhækkanirnar eru náttúrulega bara út af gríðarlegum kostnaðarhækkunum á vörum undanfarið sem og launahækkunum. Heilt yfir eru öll aðföng að hækka og hafa verið á uppleið síðan fyrir áramót. Við erum bara í sömu sporum og aðrir,“ sagði Guðrún.
Bæjarins beztu er eitt elsta fyrirtæki miðborgarinnar og hóf rekstur árið 1937. Nú selur fyrirtækið pylsur á fjórum stöðum: Tryggvagötu á móti Kolaportinu, Smáralind, Skeifunni og hjá verslun Byko í Breiddinni.