Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að traust á embætti ríkissáttasemjara hafi skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA. Það segir í yfirlýsingu frá miðstjórn sem hefur fundað um málið frá því seinni partinn dag en í yfirlýsingunni skorar miðstjórn á ríkissáttasemjara, Aðalstein Leifsson, að draga tillögu sína til baka.
Eins og greint hefur verið frá kallaði ríkissáttasemjari til blaðamannafundar fyrr í dag þar sem hann lagði fram miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA. Stjórn Eflingar hefur í kjölfarið lýst yfir vantrausti á ríkissáttasemjara.
Í yfirlýsingu miðstjórnar segir að þau telji að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.
„Framganga embættisins er atlaga að sjálfstæðum samningsrétti stéttarfélaga, gengur gegn áratuga venjum um samskipti aðila vinnumarkaðarins og skorar miðstjórn ASÍ á ríkissáttasemjara að draga hana til baka,“ segir í yfirlýsingunni þar sem þau segja að um neyðarúrræði sé að ræða og að ekki hafi verið komnar upp þær aðstæður í viðræðum Eflingar og SA sem hafi kallað á að nýta úrræðið núna.
„Viðræðum milli Eflingar stéttarfélags og SA hafi vissulega verið slitið en hins vegar standi nú yfir lýðræðisleg atkvæðagreiðsla um hvort boða skuli til verkfalls. Verkfallsboðun hafi því ekki verið samþykkt af félagsmönnum, verkfall ekki verið boðað og ekkert neyðarástand skapast. ASÍ telur heimild sáttasemjara jafnframt bundna við að átt hafi sér stað náið samráð við aðila um efni hennar og að hún eigi ekki að leggjast fram án þess að hafa a.m.k. þegjandi samþykki beggja aðila. Hvorugt þessara skilyrði sé uppfyllt,“ segir að lokum.