„Undanfarið hef ég orðið var við misskilning hjá fólki sem þekkir ekki til mála. Hann er til kominn vegna fyrirsagna fjölmiðla í kjölfar yfirlýsingar minnar í mars í fyrra. Þessar fyrirsagnir gáfu í skyn að mistök mín hafi verið meiri en raun ber vitni meðal annars vegna þess að yfirlýsing mín var ekki nákvæmari en svo að það mátti misskilja hana,“ segir fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason í nýtti færslu á Facebook-síðu sinni.

Frosti hefur verið mikið í umræðunni síðastliðið ár eftir að fyrrverandi kærasta hans steig fram í viðtali í hlaðvarpinu Eigin konur sem birtist á Stundinni í mars í fyrra. Þau áttu í sambandi á árunum 2009 til 2012.

Meðal þess sem fyrrverandi kærasta Frosta greindi frá var að hún hefði lifað í stöðugum ótta um að hann myndi láta verða af hótunum um að dreifa kynferðislegum myndböndum af henni. Myndböndin hafi hann tekið upp án hennar vitundar á meðan þau voru enn saman. Í kjölfarið sendi Frosti frá sér tilkynningu á Facebook, þar sem hann sagðist taka fulla ábyrgð á sinni hegðun og ekki rengja hennar upplifun.

Frosti segir einhverja fjölmiðla hafa greint frá því að hann hefði gengist við ásökunum Eddu Pétursdóttur.

„Þetta er að hluta til rétt en staðreyndin er sú að ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar eins og margir virðast nú halda. Í tilkynningu minni sagðist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sambandi okkar lauk,“ segir Frosti í færslu sinni nú.

Frosti segist hafa fengið þráhyggju fyrir því að fá viðurkenningu á „brotum hennar“ gagnvart sér og tók að senda ítrekaða tölvupósta til hennar á nokkurra mánaða tímabili.

„Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til innihaldslausra hótana í þessum tölvupóstum. Það er ótrúlegt hvað höfnunarkendin getur beyglað vandræðapésa af þeirri gerð sem ég var á þessum tíma. Ég legg áherslu á að mér og mínum finnst ég vera á miklu betri stað núna en það er endanlega annarra að dæma um það,“ segir Frosti jafnframt og bætir við að hann ítreki að hann hafi viðurkennt og beðist afsökunar á að hafa sent óviðeigandi tölvupósta eftir að sambandi þeirra lauk.

„Annað gerði ég ekki og ég hef ekki gengist við neinu öðru. Ég lagði aldrei hendur á fyrrverandi kærustu mína, beitti hana ekki andlegu ofbeldi á meðan á sambandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar eins haldið er fram,“ segir Frosti.

Hann segist jafnframt hafa lagt áherslu á að rétta sáttarhönd til sinnar fyrrverandi eftir að viðtalið birtist. „Það hef ég bæði gert sjálfur persónulega og í gegnum fagaðila. Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í málflutningi hennar opinberlega. Mér hefur heldur aldrei fundist við hæfi að hengja upp okkar skítugasta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekkert erindi til almennings,“ heldur Frosti áfram og segist bera þá von í brjósti um að fyrrverandi kærasta sín muni vilja ljúka málinu á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við.

Edda Pétursdóttir, fyrrverandi kærasta Frosta, hefur nú sent frá sér yfirlýsingu Twitter vegna yfirlýsingar Frosta.

„Ég er búin að segja mína sögu og ég stend við hana,“ segir Edda.

Fréttin hefur verið uppfærð með færslu Eddu.